mánudagur, mars 20, 2006

Vinnum við Eurovison?


Bloggað á MSN space October 17

Um þessar mundir auglýsir BaseCamp fyrir hönd Ríkisútvarpsins-Sjónvarps, eftir lagi til þáttöku í Söngvakeppni sjónvarpsstöðvar sem fram fer á Grikklandi í maí 2006.
Lagið má ekki hafa verið flutt opinberlega og hámarkslengd þess skal vera 3 mínútur. Texti lagsins skal vera á íslensku vegna flutnings hér heima.
Höfundar skili lögunum til BaseCamp, Vatngörðum 4, 104 Reykjavík eigi síðar en 18. nóvember, merktum Söngvakeppnin 2006. Lögin skulu merkt dulnefni höfundar en rétt nöfn fylgi í lokuðu umslagi.
Frekari upplýsingar eru veittar hjá BaseCamp í síma 591 5250 eða í vefpósti info@Basecamp.is

Nú er spuningin hve mikið það hefur að segja varðandi við val lagsins að skila nafni höfundar í lokuðu umslagi? Hugmyndin er líklegast sú að halda "fordómnefnd" sem velur lögin í undankeppnina sé hlutlaus og velji ekki frekar lög þekktra músíkanta. Það er allt gott og blessað. Spurningin er hinsvegar efir hverju dómnefnin sé að leita. Eru þeir að leita að eurovision euro-pop froðu, eða eru þeir að leita að orginal hugmyndum, eða íslensku pop\rokki?
Gefum okkur það að þekktir lagasmiðir séu hæfari til að semja góð lög í eurovision, gefum okkur að þeir eigi helming laganna í undankeppninni. Gefum okkur að þeir fái þekktar hljómsveitir/söngvara til að syngja lögin sín. Þá mun lagið sjálft skipta tiltökuelga litlu máli. Án efa verður efnt til símakostningar.Reynslan sýnir okkur að í símaskosningum skiptir lagið oft minna máli en flytjandi, (kostning Birgittu í síðustu undankeppni).
Það sem ég er í raun að ýja að er að ég hef þá tilfinningu að undankeppnin sé meira "for show" heldur en til að finna besta lagið til að sigra Eurovision... en kanski er það einmitt meinið. Takmarkið er kanski EKKI að vinna Eurovision!
Nei, ég segi bara svona. Það eru jafn margar skoðanir um Eurovison og lögin og íslendingar eru margir... en sannið til, einhverntíman eiga Smaladrengirnir eftir að sigra Eurovision....

... eða komast amk næstum því í undankeppninga

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skora á Smaladrengina að taka þátt í Eurovision. - October 19 9:38 PM