Umhverfis hverfið Um
Bloggað á MSN space May 08
Það er langt liðið á nóttina þegar skuggalegur maður haltraði eftir blautri gangstéttinni í áttina að gosbrunninum í útjaðri borgarinnar. Hann hálf hrasaði niður að steinsteyptum bakkanum og dýfir höndunum á bóla kaf í jökulkalt vatnið. Rauðar slæður teygja sig út frá höndum mannsins þegar hann nuddar þeim saman og reynir að hreinsa þær. Eftir dágóða stund virtist hann vera ánægur með árangurinn, snýr sér við og sest með bakið upp við bakka gosbrunnsins. Hann tekur upp úr innri frakkavasanum gljáandi fægða silfuröskju sem endurkastar ljósum gosbrunnsins út í loftið. Úr öskjunni kemur Camel sígaretta fíterslaus en úr hægri buxnavasanum dregur maðurinn upp zippó kveikjara með mynd af tveim hlaupandi hestum á. Hann opnar lokið á kveikjaranum og rennir þumalfingrinum þéttingsfast yfir tinnuhjólið. Gneistarnir skjótast út um alt, en enginn eldur brýst út úr kveikjaranum. Hann reynir aftur. Hann reynir í þriðja sinnið en ekkert gerist. Uppgjafastuna heyrist um leið og hann gengur frá kveikjaranum og silfuröskjunni en sígarettan hangir enn út úr kjaftinum, jafn lafandi og hann er útkeyrður.
Í fjarska heyrist bíl ekið með ógnarhraða svo dekkin ýlfra í beygjunum. Skuggalegi maðurinn sprettur upp eins og gormur, skyndilega fullkomlega laus við alla þreytu eða uppgjöf. Hann veit að bíllinn er á leiðinni hingað. Hvernig gátu þeir fundið hann? Hann faldi slóðina eftir sig fullkomlega, þeir geta ekki hafa rakið leiðina alla leið hingað. Skyndilega rennur upp fyrir honum ljós. Hann tekur upp kveikjarann og fleygir honum frá sér. Kveikjarinn svífur í gegnum loftið eins og flugdreki og lendir í miðjum gosbrunninum með litlu "splass" hljóð. Maðurinn hleypur af stað burt frá gosbrunninum út á myrkt túnið sem teygir sig upp eftir hlíðinni. Svartur Mercedes Bens pallbíll kemur með ógnar hraða með háuljósin og ljóskastara á fullri keyrslu. Maðurinn reynir að leita út í skuggana en pallbíllinn sem færist nær og nær baðar túnið umhverfis hann í ónáttúrulegu halogen ljósi. Skuggalegi maðurinn grípur á hlaupunum lítinn gulan miða úr vasanum, rífur hann í tvennt og skellir rifunum upp í munninn. Pallbíllinn gefur bensíngjöfina í botn síðustu metrana. Maðurinn stoppar skyndilega, kyngir síðasta málsverðinum, snýr sér við og tekur óflýjanlegum örlögum sínum uppgjafa svip...

Engin ummæli:
Skrifa ummæli