mánudagur, mars 20, 2006

Bróðir sokkaþjófsins

Bloggað á MSN Space November 24

Ég á við hvimleitt vandamál að stríða. Af einhverjum ástæðum tekst mér með engu móti að haldast á vettlingum yfir veturinn. Það er sama hvað ég reyni, fyrr en varir stend ég uppi vettlingalaus að frjósa á puttunum í nístings frosti! Það sem er þó enn merkilegra er að þegar ég fer að leita vettlinganna finn ég bara vinstrihandar vettlinga, og það þrjá staka vinstri vettlinga!

Í haust þegar fór að kólna ákvað ég að festa kaup á forlátum "one size fits all" Flís vettlingum á heilar 299kr í Rúmfatalagernum. Ég gerði mér grein fyrir svartholi vettlinga sem ásækir mig svo ég keypti tvö pör. Í síðustu viku gerði ég mér grein fyrir því að bæði pörin voru á bak og burt og aðeins þrennir hægrihandar vettlingar í kommóðunni.Þegar ég hugsa um 5 ár aftur í tímann þá sýnist mér ég hafa tapað að minnsta kosti 12 pörum af vettlingum. Þar síðustu jól fékk ég reyndar fína leðurhanska bæði frá konunni minni og mömmu. Ég setti persónuleg met í að varðveita þá en bæði pörin voru horfin eftir um 5 mánuði.

Ég á reyndar við svipað vandamál að etja í sokkaskúffunni. En það vita allir að ógurlegt fjölfóta skrímsli er á bak við sokkaþjófnaðinn. Það skrímsli skríður inn i þvottavélar og þvottakörfur með óstöðvandi lyst í ósamstæða sokka.

Ég tel mig hafa uppgötvað að sokkaskrímslið sé ekki eitt á ferð heldur eigi það bróður, vettlingaskrímslið (eða glófaskrómslið). Það skrímsli er með ótal hendur og óteljandi putta. Skrímslinu er kalt á puttunum og notar því hvert tækifæri sem gefst til að stela hönskum þegar mannfólkið leggur það frá sér eða leggur þá í skúffur.

Það á eftir að koma í ljós hvort fjölskyldan sé stærri, en ég vona að ég verði ekki var við það hyski!

Engin ummæli: