mánudagur, mars 20, 2006

Gigg út á landi

Bloggað á MSN Space November 07

Smaladrengirnir ráðinir til að syngja á Egilstöðum um síðustu helgi. Þar var á ferðinni Bændahátíða. Við fórum með flugi á laugardagsmorgni og fórum beint í flugfélagið og sungum nokkur lög fyrir og eftir Lopapeysu tískusýningu. Bragi hafði tekið með sér smaladrengjadiskinn "Strákapör" og datt í hug að auglýsa hann til sölu... svona til gamans. Sá ótrúlegi atburður átti sér þá stað að fólk þusti úr öllum áttum og keyptu heil 8stk. Ekki nóg með það heldur kom í ljós að eitt eintak var til í versluninni sjálfri! Ég veit reyndar ekki hvort það sé hrós, því hann hefur líklegast verið þarna síðan við gáfum hann út, fyrir rétt um 5 árum. Hann var einnig seldur á tæpar 2399kr. Ég vil senda þeirri konu sérstakar hamingjuóskir með diskinn og vona að hún muni njóta vel og lengi.Síðar um daginn sungum við á kaffisamsæti fyrir "fyrrum bændur" við ágætar undirtektir. Um kvöldið var síðan borðhald fyrir starfandi bændur. Við og Steinn Ármann vorum aðalskemmtiatriði. Okkar atriði gékk ágætlega fyrir utan eitt klúðurslegt lag, og á eftir okkur tróð Steinn Ármann upp svo haugadrukkinn að hann rétt náði að koma setningunum frá sér. Sem betur fer gekk uppistandið hans út á piss\kúk\klám brandara svo framkoman passaði ágætlega við.

Einn hápunktur helgarinnar var hinsvegar labbitúr Smaladrengjanna sem endaði með leik í Buzz, spurninga leiknum á Playstation2 sem var í gangi í BT Egilstöðum. Leikurinn er óskaplega skemmtilegur og gengur út á að þekkja tónlist, hljómsveitir og tónlistamenn út frá hljóðbrotum. Það kemur engum á óvart að Daníel Brandur rústið þessu og ég drullutapaði. En ég var reyndar óheppinn að taka helling afstigum í einum hluta leiksins. Mæli með að allir prófi þennan leik.

Eftir tveggja daga fjarveru frá fjölskyldunni kom ég heim síðla á sunnudag og komst að því að Valur Kári hafði bæði stækkað og þroskast. Það er ótrúlegt hvað markt smátt breytist á skömmum tíma.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Múhahahaha þið eruð allir aumingjar og ég rústa ykkur múhahahahahahaha....múhahahahaha..... - November 09 10:01 PM