miðvikudagur, mars 22, 2006

Herslumunurinn

Bloggað á MSN Spaces January 30

Nú eru 8 vikur liðnar síðan ég hóf nýtt og betra mataræði og þátttöku í heilsuþættinum á skjá einum. Síðustu upptöku þáttarins um mig er lokið og nú þarf ég ekki lengur að skila inn vikulegum skýrslum um hvað ég er að láta ofan í mig. Á þessu tímabili hef ég lést um 7 kíló en samt bætt á mig talsverðum vöðvamassa. Þáttaröðin hefst á Skjá 1 þann 21.febrúar, en ég er líklega í öðrum þætti, 28.febrúar og síðan koma allir þátttakendur saman í tíunda og síðasta þætti.

Ég er staðráðinn í að halda þessu mataræði áfram að mestu leiti og halda áfram að hreyfa á mér skankana og dilla bossann í ræktinni. Nú þegar ég er ekki bundinn af skýrslugjöf þá finn ég aðeins fyrir því að sætindi eru enn freistandi. Ég borðaði til dæmis paprikusnakk um helgina sem telst ekki nógu gott (það er bæði sykur, sætuefni og efnaunnar olíur í paprikusnakki ásamt ýmsum aukaefnum). En reyndar verð ég að segja á móti að bragðið var nú ekki eins gott og í minningunni. En í stuttu máli sagt, baráttan heldur áfram og ég skal ekki falla í ánetjunargildru kóks og súkkulaðistykkja aftur. Og hana nú (sagði hænan og lagðist á gólfið)!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gó bró!!! - February 01 8:52 AM