Tónlistartæki
Bloggað á MSN Spaces November 21
Bragi Smaladrengur benti mér á brjálæðislega sniðugt apparat sem er nú fáanlegt á Íslandi. Upprúllanlegt píanó!Þetta er semsagt hljómborð sem hægt er að pakka ofan í smá tösku og fara með hvert á land sem er. Þú getur spilað fyrir sjálfan þig með heyrnartólum eða haldið tónleika á afgreiðsluborðinu hjá Hlöllabátum, möguleikarnir eru endalausir! Svo er hljóðið í þessari græju bara alveg ágætt!Hecsan Rollup Piano fæst í Bílanaust (merkilegt nok) á litlar 6þúsund krónur sem er algjört gjafaverð fyrir svona grip. ferkari upplýsingar má finna hér:http://www.hecsaninc.com/rollup.html
Það er annar brjálæðislega sniðugur hlutur sem mig hefur lengi langað í sem kallast Rythm Sticks. Þetta er air-drum trommukljuðar, þ.e. trommukjuðar með innbygðu strommuhljóði sem bregst við handasveiflum. Endalaus skemmtun auk þess sem maður sleppur við að dragnast með trommusettið út um allt. Græjan kostar líklega litar 2500kr innflutt frá Bretlandi. Ef einhver hefur séð svona græju hérna heima má sá hinn sami gjarnan láta mig vita strax. Þeir gætu verið undir nafninu "RockBeat Rhythm Sticks".Ferkari upplýsingar hér:http://www.iwantoneofthose.com/search.do?productCode=RHYSTI
Það er síðan ákveðin hugmynd að halda tónleika með Rollup piano, rhythm sticks, air-guitar og álíka hljóðfærum.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli