Ótrúlegt samsæri!
Bloggað á MSN Space October 28
Ótrúlegt samsæri! Ég horfið nýlega á stórmyndina "xXx2: State of the Union (eða "xXx2: The next level"). Myndin er klassísk mynd sem snýst um sprengingar, bíla og samsæri gegn bandaríkjunum og forsetanum. Sem betur fer bjargaði sérstakur hluti leyniþjónustunnar deginum með öllum tiltækum ráðum. Helber vitleysa... eða hvað?
Þegar ég fór að hugsa málið tók ég eftir því að það eru ákveðnir samnefnarar með ótrúlega mörgum Bandarískum myndum. Ef kafað er dýpra, á bakvið ofsahræðslu við vont fólk sem vill meiða Bandaríkin þá sér maður að Bandarísk stjórnvöld eru alltaf með ótrúlegt ríkisleyndarmál í bakhöndinni til að verja sig og berjast gegn óbótamönnum. Þá fór ég að hugsa, bíddu nú við, við erum varin af Bandaríkjamönnum. Gæti verið að stórnarfarslegt samsæri tegi sig hingað? Þá skyndilega datt sannleikurinn yfir mig.
Ó MÆ GOD!
Samsærið
1. Það er engin Kárahnjúkavirkjun!
Í rauninni eru Bandaríkjamenn að byggja háleynilegt neðanjarðar fangelsi og rannsóknarstofur undir hálendi Íslands. Við höfum séð þessa neðanjarðakomplexa í ótal bíómyndum (eins og xXx2, X-men2, Three Kings, Stargate SG-1, Doom, ID4, Terminator3 og endalaust fleyri myndum).
Hvaða virkjunarframkvæmd myndi nota 2 risa bora sem ganga á lestarteinum eingöngu til að grafa aðrennslisgöng? Sjá frétt af vef kárahnjúka 24.okt http://www.karahnjukar.is/ "Bor2 er kominn í gegnum steypuklumpinn í þriðja og síðasta misgenginu á rúmlega 40 metra kafla sem hann hefur verið meira og minna fastur á í hálft ár." Hátæknibor fastur í 40metra kafla í hálft ár? Ég held nú ekki.
Af hverju haldiði að verkamennirnir séu allir erlendir? Flestir þeirra eru sérþjálfaðir fangaverðir og sérsveitarmenn til að verja svæðið. Það þarf hinsvegar ekki atvinnuleyfi fyrir fangana sem verið er að flytja til landsins!
Hugsið ykkur hvað þetta er fullkominn staður fyrir leynilegt neðanjarðarmannvirki til að geyma fanga og gera ómannlegar tilraunir. Þarna kemur enginn, landið er afskerkt og ef þetta kemst upp þá geta þeir bara sokkið öllum komplexnum undir vatn, aur og drullu!
2. Álverið í Straumsvík er ekki álver!
Bandaríkjamenn hafa verið að nota Álverið í Straumsvík til framleiða vopn og skriðdreka í áraraðir. Engum dettur í hug að Bandaríkjamenn myndu framleiða vopn hér. Svo er líka auðvelt fyrir þá að flytja framleiðsluna bæði til Bandaríkjanna eða til stríðsreksturs út frá Evrópu.
3. Álverið í Reyðarfirði verður ekki álver!
Í raun eru Bandaríkjamenn að byggja þjálfurnarbúðir fyrir sérstaka deild bandaríska hersins, sem fer meðal annars með umsjón Kárahnjúkakomplexins og framleiðslu Bandaríkjanna í landinu. Það er mun hagstæðara að þjálfa hermenn hér álandi heldur en heimafyrir.
-----
Hvernig getur þetta verið, spyrja sumir. Jú, þetta á sér langa forsögu, líklegast alveg síðan Bandaríkjamenn tóku við vörnum Íslands. Þetta samsæri nær líklegast upp til æðsturáðamanna. Ég er ekki einn um að finnast umræður við Bandaríkjamenn um varnir Ísland dularfullar. Tíðar ferðir sendimanna milli landa og undarlegt blint traust á ákvarðanir Bandaríkjamanna sbr. innrásina inn í Írak
Ef ég skyldi hverfa af yfirborði jarðar á næstu dögum... þá vitið þið af hverju.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli