föstudagur, mars 24, 2006

Spore, leikur aldarinnar


Bloggað á MSN Space March 23

Nú er einn stærsti og áhugaverðasti tölvuleikur sögunnar rétt handan við hornið, en þróunarleikurinn Spore er væntanlegur um mitt sumar, líklegast í júlí.Þarna er á ferðinni uppbyggingaleikur dauðans, lífhermileikur sem á sér engann sinn líkann.

Leikurinn gengur í stuttu máli út á það að þú byrjar sem örlítil baktería og þróar þig smám saman uppeftir þróunarkeðjunni upp í að verða æðri vitsmunavera sem svífur um vetrarbrautina og kannar óæðri lífverur.Það sem gerir þennan leik svo ótrúlega einstakan er að veran þín er algjörlega óskrifað blað. Þú ræður útlitinu fullkomlega og hannar hana algjörlega eftir þínu höfði. Síðar meir getur þú hannað byggingarnar og samfélagið allt eins og þú vilt hafa það.

Mesta argasta snilldin er þó að svo til allt í leiknum er frumskapað af einhverjum. Sköpunarverk annarra spilara í heiminum kemur inn í þinn heim. Þú þarft að berjast við að halda lífi sem rándýr eða sníkjudýr og berjast við þau skrímsli sem aðrir hafa skapað. Þú þarft að hafa samskipti við eða berjast gegn öðrum siðmenningum sem aðrir spilarar hafa skapað. Þá stjórnar tölvan þeim siðmenningum á sama hátt og raunverulegi skaparinn spilaði hana.
Að lokum þegar þú ert orðinn geimvera á UFO sem flækist um vetrarbrautirnar eru möguleikarnir endalausir. Viltu stofna nýlendur, viltu endurskapa War of the Worlds, viltu búa til þinn persónulega plánetudýragarð? Möguleikarnir eru endalausir.

Ég vara fólk við að klára sem flest mál sem við mér koma áður en leikurinn kemur út. Eftir það verð ég vant við látinn.

Leikurinn er gefinn út af EA og Maxis, sem frægast er fyrir Sim- leikina eins og SimCity. Höfundur leiksins er Will Wright einn af upphafsmönnum Maxix. sem á meðal annars heiðurinn af genakerfi Sims2

Kíkið á magnað video sem sýnir ýmsa áfanga í leiknum hér:http://video.google.com/videoplay?docid=8372603330420559198&q=Spore

Eða heimasíðu leiksins hér:http://www.spore.com/

Engin ummæli: