laugardagur, mars 18, 2006

Eurovision-klúðurísjón

Bloggað á MSN space May 22

Nú er enn einu Eurovision æðinu lokið, þar sem Grikkland stóð uppi sem sigurvegari. Eins og alþjóð veit (og að öllum líkindum alheimurinn miðað við umfjöllun íslenskra fréttamanna) komst Ísland ekki í aðal keppnina í ár þrátt fyrir að vera með sigurlag keppninnar. Það virðist vera sem svo að alþjóðlegur hittari sé ekki það sem stór-Evrópa er að leita að þetta árið.

Nú hafa íslendingar, eða réttara sagt ákveðnir einstaklingar hjá RÚV, reynt nánast allt. Þar má nefna allnokkur alþjóðleg lög, nokkrar ballöður, enskuskotið íslenskt lag, fallegar konur og myndarlega karlmenn en ekkert hefur skilað okkur sigri.

Í hitteðfyrra skaut hugmynd upp kollinum hjá mér, í fyrra var mér allnokkuð hugsað til hennar og í ár hugsaði ég mjög mikið um hana og hef rætt hana við marga. Af hverju kemur ísland ekki með ÍSLENSKT þjóðlegt lag í næsta Eurovision. Er ekki tími til kominn að við hættum að herma eftir öðrum, hættum að sjóða saman lög úr hinum og þessum "hittara" bútum?

Mín hugmynd er sú að búa til lag úr rammíslenskum takti, 4-3-4-2 (hani krummi.. takturinn), með fimmundasöng hlutum í bland við vel útfært dansslagverk meðal annars með steina spilinu víðfræga. Þá myndi Steingrímur rímnamaður sem gerði það gott með Sigurrós taka góðar stemmur af og til. Búningarnir gætu verið víkingablandnir með sauðskinnsskóm og flegnum laxaleðurtoppum, svona til að vera í takt við tímann. Þetta yrði alveg stórkostleg ný-íslensk samsuða sem myndi vekja óskipta athygli heimsins. Það magnaða lag myndi kannski ekki færa okkur sigur en eflaust vekja gríðar mikinn áhuga á íslensku arfleiðinni og vera alveg fyrirtaks landkynning. Ég skal gjarnan setjast niður með Vigni og pæla virkilega í þessu.

Ef RÚV mönnum finnst þetta of rætið gætum við dregið aðeins úr þessu og tekið upp á því að endurvekja Þursaflokkinn. Þeir voru aldeilis þjóðlegir og væru ekki í neinum vandræðum með að skella saman einu þjóðarpopplagi sem við gætum verið stolt af.

Gallinn (og kosturinn) við nútíma Eurovision (sem og flest í heimi hér) er að allir vilja græða á því. Það er hætta á að rammíslenskt lag myndi ekki verða vinsælt í útvarpi á "hip" stöðvum og eflaust ekki gera það gott hjá yngri hluta landans. Það þíðir að útgáfufyrirtæki smáskífunnar getur ekki gert góðan samning við fyrirtæki um að eiga einkarétt á sölu smáskífunnar og fyrirtæki geta auglýst veðmál sem lofa gullum grænum endurgreiðslum á meðan enginn hefur sérstaka trú á laginu. Það skásta sem hægt væri að gera til að reyna að þjóna bæði væntingum mínum og væntingum hagsmunaaðila myndi vera að senda á næsta ári stuðmenn með Hildi Völu í fararbroddi. Það gerast ekki þjóðlegri hljómsveitir og Hildur Vala ætti að vera nógu sæt til að bræða kjósendur Evrópu. Þar að auki er það flott að hafa heila hljómsveit á sviðinu en ekki þessar eilífu dansandi glyðrur alltaf (hinir tignarlegu dansarar Íslands þetta árið er ekki meðtaldir).

Það er kominn tími fyrir Ísland að gera eitthvað nýtt... ég meina við getum ekki gert verr en þetta.

Engin ummæli: