"The plot thickens"
November 03
Ótrúlegt en satt, aðeins örfáum dögum eftir að ég ljóstraði upp um hið svakalega samsæri varðandi raunverulegan tilgang Kárahnjúka (sjá eldra blogg með titilinn "Ótrúlegt samsæri" ) þá koma upp tvö stórmál þessu tengt á íslandi. Það fyrsta var málið með Pólverjana sem neituðu að fara frá Kárahnjúkum vegna þess þeir höfðu ekki fengið tilskilin laun frá hinni illræmdu vinnuleigu 2B. Það sér hver heilvita maður að þetta er hreint bull. Þetta er aðeins fyrirsláttur til þess að fela alvarlegri hættu á að upp komist um málið. Það kom nefninlega í ljós að Bandarískar fangaflugvélar lenda oft hér á landi. Þær eru að flytja fanga bæði frá Bandaríkjunum og Austur evrópu hingað svo tugum, þúsundum ef ekki tugþúsundum skiptir. Þá gegnir 2B lykilhlutverki í að koma föngunum frá Keflavíkurflugvelli til Kárahnjúka. Það er ótrúlegt að enginn annar hafi komið auga á þetta!
Þess má geta að þegar þetta er skrifað eru 4411001 sekúndur til jóla.(Sjá http://helgafell.rhi.hi.is/jol/ )

Engin ummæli:
Skrifa ummæli