föstudagur, mars 24, 2006

Undir hámarkshraða utanbæjar


Bloggað á MSN Space March 01

Nú þegar "allir" landsmenn vita af heilsugeðveikinni í mér þá er eins gott fyrir mig að halda mig við þessar reglur. Ég læt nú ekki sjá mig með súkkulaði og kók í hendi eftir að hafa komið með ýmsar fullyrðingar í sjónvarpi. Hver veit hvar ljósmyndarar Séð og Heyrt leynast! Ég sé alveg fyrir mér fyrirsögnina: "Óskar fallinn!" ... hmmm...það væri nú kannski alveg þess virði, ef maður kæmist í séð og heyrt... en samt ekki.

Anyways, markmið mars mánaðar er hér með gert opinbert. Ég ætla mér að brjóta múrinn og koma mér niður fyrir næsta kílóatug. Herða á hollustunni, vera aftur duglegri við að dilla skönkunum út um hvippinn og hvappinn og vera góð fyrirmynd.

Ég þakka þeim sem hlýddu í gær. Lifið heil (og sæl).

Engin ummæli: