Strákurinn kominn af stað

Bloggað á MSN space May 20
Nú fer allt að gerast. Valur Kári er kominn á hálft skrið, farinn að daga sig áfram með höndunum á öðru hnénu með annanfótinn sperrtan fyrir mótspyrnu. Hann er sérstaklega áhugasamur þegar kemur að snúrum og er ekki lengi að draga sig yfir gólfið að tölvunni þar sem er algjört snúruhimnaríki. Ryksugan er líka í miklu uppáhaldi þessa dagana og þá auðvitað sérstaklega rafmangssnúran.
Hann borðar vel, en ekki nema hann geti troðið matnum sjálfur upp í sig, þetta mauk í barnakrukkunum og annað fínmaukað er fyrir neðan hans viðringu núna. Um daginn var Harpa búin að gera voða fínann rétt úr svínakjöti, rófum og kartöflum, allt voða bragðgott og maukað, en það var ekki að ræða það. Þessi réttur var ekki VK að skapi, allt út sem kom upp í munn og mikill pirringur. Þegar við tókum á það ráð að smyrja þessu mauki á litlabrauðbita var allt annað upp á tengingnum og át hann ÞAÐ með bestu lyst. Það er sko ekki sama matur og matur.
Málþroskinn er á góðu róli, mörg skemmtileg hljóð komin í umferð enda babblar hann stöðugt daginn út og inn. Það er farið að móta fyrir ba-bi og mamna, þó það sé nú bara eftirhermuhljóð en engin meining þar á móti. Fleiri eftir hermur sem við þykjumst þekka eru meðal annars bauhh, eða brauð og mmmammm eða namm, sem stendur fyrir mat.
Yfir höfuð er VK ótrúlega glaðlyndur strákur sem hlær með öllum umhverfis sig(og sjónvarpinu líka). Hann hefur óþreytandi áhuga á umhverfinu, sérstaklega eftir að hann fór af stað.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli