Upprisa svitabanda

Bloggað á MSN Space March 02
Dannmerkur umræða #2
Hver kannast ekki við það að vera að a púla í ræktinni, eða að vera á skokkinu og byrja að svitna verulega? Svitinn byrjar að leka niður bakið og áður en maður veit af byrja droparnir að myndast á enninu og renna niður á nefbroddinn. Áður en langt um líður fara svitataumarnir að renna í stríðum straumum og þrátt fyrir að reynt sé að þurrka þá með ermi eða öðru tiltæku endar ein lækjarsprænan ofan í auga.
Þetta er hvimleitt og leiðinlegt vandamál en til er ósköp einföld og gömul uppfinning sem kemur í veg fyrir þetta. Svitabönd! Á níunda áratugnum voru svitabönd í tísku og þótti enginn maður með mönnum nema eiga amk eitt svitaband á ennið og helst líka á sitthvorn úlnliðinn. Þegar allir áttuðu sig á því hve 80's tískan var hörmulega lummuleg urðu svitaböndin algjört taboo ásamt glimmer og glans klæðnaði.
Ég er á því að svitaböndin ættu aldrei að hafa farið úr tísku. Eða réttara sagt að það hafi verið grundvallarmistök að þróa þau ekki með breyttum tískustraumum. Ég hef áhuga á því að standa fyrir þjóðfélagslegri vakningu um gagnsemi svitabanda.
Svitabönd þurfa ekki að vera í æpandi litum eða líta út eins og upprúllaðir bómullarsokkar. Hvernig væri að halda hönnunarsamkeppni á svitaböndum? Hensons svitabönd, svitabönd frá þekktum tískufata framleiðendum? Svitabönd úr hátækniefnum nútímans sem notuð eru í ýmsum útivistafatnaði sem taka hleypa raka í gegn svo hann geti gufað upp og kælir húðina? Möguleikarnir eru endalausir.
Stöndum saman, endurvekjum gömlu góðu svitaböndin. Þau eru ekki lummó... þau eru svöl!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli