Hver vill vera memm?
Bloggað á MSN Space January 11
Ég auglýsi hér með eftir áhugasömum einstaklingi sem er við það að skella sér í hreyfingarátak. Einstaklingurinn þarf að vera reiðubúinn til að skrá sig í Bónusklúbb hreyfingar. (Sjá nánar á http://www.hreyfing.is/). Í kaupbæti við glæsilegar skráningagjafir (andvirði 18þús.kr) gef ég tvo fría skyrshake drykki frá Hreyfingu. Í staðin fæ ég hinsvegar glæsilegan blender frá Hreyfingu fyrir að koma með nýjan bónusklúbb félaga.
Ef einhver vill frekar bara gefa mér blender beint án þess að skrá sig í bónusklúbbinn, þá gengur það líka.



1 ummæli:
Damnit, ég er þegar skráður í Bónusklúbbinn - January 12 5:25 PM
Skrifa ummæli