fimmtudagur, mars 23, 2006

Hollráð vikunnar

Bloggað á MSN Space February 06

Þegar ég ræði við fólk um þetta nýja og betra líferni sem ég hef að mestu leiti tekið upp fæ ég gjarnan spurninguna: "En er þessi hollustumatur ekki svo vondur,þú veist tófúið og allt það?"Staðreyndin er sú að ég hef aldrei prófað að elda tófú eða soyjaköt og ekki bragðað soyjamjólk eða ost síðan ég byrjaði á þessu. Ég hef heldur ekki lifað á baunaspýrum og sellerí. Það "eina" sem ég hef gert er að sleppa ákveðnum vörum og auka annað í staðin. Hafragrautur er gott dæmi um hve hægt er að gera góðan morgunmat úr annars óáhugaverðu hráefni.

Leyndarmálið við bragðgóðan hafragraut.

Áður: Eldaði ég (eða Harpa ölluheldur)hafragraut þannig að ég setti haframjöl úr gulu "sól"kössunum og vatn í pott og bætt við salti, sykri og etv mjólk. Úr varð temmilega slepjuleg klessa sem hægt var að neyða niður með mjólk ef vilji var fyrir hendi
Núna: Kaupi ég tröllhafra eftir vikt frá Heilsu, sem eru auk þess lífrænt ræktaðir (ekki að það skipti samt máli), set þá í pott með vatni, kanil, dash af hreinum vanilu extrakt, salti og smá pipar. Það er líka gott að bæta hálfri lúku af rúsínum útí. Þegar grauturinn er soðinn og tilbúinn tek ég hann af hellunni og helli 1 matskeið af hörfræolíu pr. skammt (þ.e. per mann, t.d. 1mtsk pr ca 150gr af höfrum). Úr þessu verður fyrirtaks grautur sem er í senn mjúkur í munni og bragðgóður.

Ég borða núorðið hafragraut í morgunmat 4-5 daga vikunnar án mjólkur. Enginn sykur nauðsynlegur og í hörfræolíu er mikið magn omega-3 fitusýra. Vaniluextrakt fæst í Hagkaupum úr vörulínu Sollu, kostar reyndar um 800kr en vanilubragðið er svo kröftugt að það þarf aðeins hnífsbrodd í hvert skipti. Við erum amk búin að eiga sömu dolluna síðan í nóvember og höfum samt eldað hafragraut um það bil 36 sinnum síðan þá, auk þess sem við höfum notað hana í annað, svo sem grjónagraut og bakstur.

Þeir sem vilja fræðast meira um hollustu hafragrautsins er bent á umfjöllun vísindarvefsins hér:
http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=3241

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ekki gulir sól pakkar heldur rauðir ;) - February 07 11:28 AM

Guðrún sagði...

smá aukafróðleikur um grautinn: ALLS EEKI ruglast á sesamolíu og hörolíu!! Og svo blandaði ég ekki nógu vel þannig ða ég fékk miklu meiri olíu en Jonas. Þvílíkur viðbjóður!!!