U-beygja til hægri
Bloggað á MSN space - June 08
Nú eru aldeilis umskipti framundan hjá mér. Í dag hófst þriðja stig gjörbyltingar lífs míns.
Fyrsta skrefið hófst þegar ég ákvað að skrá mig í háskóla í haust. Ég sá það í hendi mér að það þýðir ekki lengur að vera einfaldur auli með einfalt og flatt stúdentspróf heldur er nauðsynlegt að ná sér í æðri gráðu til að tryggja sér fleiri möguleika á vinnumarkaðnum. Fyrir valinu var stærsta bákn menntastofnana, Háskóli Íslands, og stefni ég á Viðskiptafærði með áherslu á Upplýsingatækni. Eftir vefstjórnarstarf síðasta árs tel ég mig vera búinn að finna mér braut í lífinu og nú mun ég ráðast á drekann ógurlega, háskólagráðuna, og ætla að sigra hana í þessari atrennu. Nú er að duga en ekki drepast.
Næsta skref hófst í síðustu viku þegar festi ég kaup á forlátu Trek 3700 fjallahjóli í tilefni þess að ég verð 25ára í lok júní. Styrktaraðilar að þessu verkefni voru Amma Hörpu, Hulda Ósk, og Mamma og pabbi. Þökk fyrir það. Það var löngu tímabært fyrir mig að fá mér hjól því síðasta hjóli sem ég átti var stolið fyrir hér um bil tveim árum. Nú hef ég lagt bílnum, tek strætó á hverju morgni í vinnuna og hjóla síðan beinustu leið heim. Nákvæmari lýsing á leiðum og endanleg niðurstaða um hver leið sé fljótlegust liggur ekki fullkomlega fyrir ennþá. Leiðarkerfi heimferðar minnar skiptist í tvo meginhluta. Leið 1 er frá skeifunni yfir Grensás niður að skóræktinni í Fossvoginum eftir göngustígnum fram fyrir flugvöllinn út á Ægisíðu og síðan beinustu leið inn á Eggertsgötuna. Leið 2 er nokkuð beinni og einfaldari en liggur beinustu leið eftir miklubrautinni gegnum bæinn þangað til komið er að háskólanum og þá beygt beinustu leið á Eggertsgötuna. Par tímar eru so far: Leið 1: 23mín, Leið 2: 18mín. Ekki er komið á hreint hvor leiðin sé í raun fljótlegri þar sem ólík veðurskilyrði hafa verið á þessum leiðum. Einnig er þetta spurning um fórnarkostnað því Leið 1 er mun fallegri á meðan Leið 2 liggur eingöngu meðfram umferðaþungum götum. Frekari tölfræði og vegalengdir liggja fyrir þar sem ég hef ekki fest kaup á hraðamæli og enginn boðist til að gefa mér hann ennþá (hint hint).
Þriðja og jafnframt síðasta skrefið í bili var tekið í dag þegar ég byrjaði í ræktinni eftir áralangt (og fitnandi) hlé. Ég og Ásgeir félagi okkar Hörpu skruppum saman í hádeginu og tókum vel á því í kroppatemjarahöllinni Hreyfingu. Þetta dramatíska skref var tekið sérstaklega eftir umræðu í bíl á leiðinni úr partíi sem ég var í síðust helgi (takk fyrir gott partý Rabó). Þar fór af stað metingur um hve allir áttu bágt á einhverju sviði. Þá sagði ég: “Sko, það er ekkert, ég er kominn með bjórbumbu sem er byrjuð að lafa yfir beltið... og ég drekk ekki einu sinni bjór!”. Það þarf var að taka það fram að ég vann þennan leik. En nú dugar sko ekkert annað en Kellogs, nú verður hjólað og æft bæði náms og líkamlega þangað til ég ver orðinn stæltur og flottur og fluggáfaður. Ég skal bara segja það hreint út, ég er full 97,3 kíló núna... all time high í langan tíma. Vil þó taka það fram, mér til varnaðar, að ég hef aldrei farið yfir 0.1 tonn en er búinn að hanga um og yfir 90kg í um tvö ár. Nú liggur þetta semsagt fyrir alþjóð og alþjóð skal líka vita að ég ætla mér niður í 80kg á einu ári. Fjandinn hafi það, er ekki kominn tími til að ég verði augnakonfekt Ekki það að ég sé hégómafullur... en ég er fullur viðbjóðs á bumbunni minni hinsvegar. Það er líka orðið nauðsynlegt að taka mig á og pumpa handleggsvöðvanna áður en Valur Kári stækkar meira. Það er alltaf að verða erfiðara að halda á honum með hverjum deginum.
Nú er kominn tími til að snúa bumbunni innávið.

2 ummæli:
Mér finnst þú augnakonfekt.
En kúl engu að síður ... spurning að maður hitti þig einhverntíman í Hreyfingunni ... kur veit kur veit. :)
Annars kýs ég leið 2 fyrir þig ... þú drepur þig á hinni leiðinni, annaðhvort með mengun, að einhver keyri á þig eða bara úr leiðindum á útsýninu.
Go!
- June 10 12:28 PM
Það er naumast. Ég reikna með að það muni þurfa nýtt vesti á þig fyrir rest, bæði út af minni bumbu og út af massaðri upphandleggsvöðvum. Þetta setur Smaladrengina á hausinn. Líst ekkert á þetta...
... svo má alltaf hjóla Laugardalinn - gegnum Lauganeshverfið - yfir göngubrúna yfir Kringlumýrarbraut - etc. etc., svona til að fá smá meiri varíasjón í heimferðirnar.
Skrifa ummæli