fimmtudagur, janúar 31, 2008

Gulrót

Nú er ég aldeilis búinn að setja pressu á sjálfan mig. Þannig er mál með vexti að Harpa og ljósmæðraungarnir (sam-ljósmæranemar hennar) hafa undanfarið verið að skipuleggja hópferð á
Ljósmæðraráðstefnu sem fer fram í Glasgow í sumar. Þessi ráðstefna er frá Sunnudegi til fimmtudags fyrstu helgina í 1.-5. Júní. Það kom í ljós þegar flugferðir voru skoðaðar að það var 10þ krónum ódýrara að bóka flugfar frá fimmtudegi til fimmtudags heldur en sunnudegi til fimmtudags. Ég segi það ekki, auðvitað er hótel kostnaðurinn meiri... en þegar við fórum að spá, þá datt okkur í hug að það það er líka hægt að fá flugfar frá fimmtudegi til sunnudags. Við Harpa höfum aldrei farið tvö saman til útlanda, og svo er ég náttúrulega að útskrifast í vor... þannig að það væri hægt að líta á þetta sem útskriftaferð, ekki satt?

Við erum semsagt búin að bóka flug, svo nú er aldeilis nauðsynlegt að halda á spöðunum. Ef utanlands-útskriftarferð með Hörpu er ekki hvatning til að leggja sig fram í vetur, þá veit ég ekki hvað.

Oooo... I cant wait.

þriðjudagur, janúar 29, 2008

Síðasta iPod vígið fallið


Við Valur Kári fórum í heimsókn til systur minnar um helgina. Það var eins og venjulega mikið stuð og gaman hjá frændsystkinunum Vali Kára og Örnu Ösp. Þau eru orðin svo stór að maður þarf svo til ekkert að grípa inn í leikinn til að sætta ágreiningsmál.

Það sem ber hinsvegar hæst í þessari heimsókn er nýi, fíni, glansandi iPod'inn hennar Sifjar, sem
hún fékk í jólagjöf. Þetta er hinn merkasti gripur, 8gb iPod nano. Ég hef hingað til ekkert haft
yfirþyrmandi áhuga á að fá mér ipod. Mér hefur nægt að vera með 2gb minniskort á símanum og sæmilegt headsett. En... þessi iPod... Næfurþunn græjan, glansandi bjartur skjár, dúnmjúkt viðmót, hörku hljómur...

Það var eins og eitt lítið tannhjól sem hélt stífluvirkinu saman hefði brostið í höfðinu á mér. Allar
langanir í iPod sem höfðu verið byrgðar inni í mörg ár flæða nú óhindraðar yfir allt. Ég er búinn að skoða alla iPodda á www.apple.is, apple.com, ebay.com, ebay.co.uk, amazon.com, amazon.co.uk... osfrv.

Og ég er að deyja mig langar svo mikið í iPod video 160GB (en myndi samt líka fórna mér fyrir iPod classic 80GB). Spurning hvort maður splæsi í sumar?

...
(vá, ég gæti sett allt Mp3 safnið mitt og hljóðbækurnar og haft plenty pláss to go around)
...
...
(ég verð svo að rippa öllu safninu mínu maður)
...
...
...
...
(Svo er náttúrulega videospilun líka... sweet)
...
...
...
[Óskar horfir dreyminn út í loftið]

mánudagur, janúar 28, 2008

Háskólanemar


Samnemendur mínir koma sífellt á óvart. Þessa önn sit ég áfanga sem heitir Aðferðarfræði III: Framhaldsefni í tölfræði. Þetta er áfangi sem krefst þess að þú sért búinn með Aðferðarfræði I og Aðferðarfræði II, sem þýðir í raun að allir nemendur í áfanganum eiga að vera amk annars árs nemar, eða útskriftarnemar eins og ég. En jafnvel þótt að í tímanum séu "sjóaðir" háskólanemar koma reglulega upp sömu spurningarnar:

"Bíddu.... kemur þetta á prófi?"
"Ha, eigum við að læra þetta?"
"Bíddu, af hverju eigum við að læra þetta?"
"Þurfum við að geta reiknað þetta?"
"Þurfum við að lesa þetta fyrir próf?
"Bíddu, segðu setninguna aftur..."
"Þarf maður að glósa þetta?"
"En við erum aldrei búin að læra þetta!"
o.s.frv. ...


Greinilegt að sumt fólk breytist lítið við það að klára grunnskóla, menntaskóla og læra í háskóla.

fimmtudagur, janúar 24, 2008

Fyrra

Ég svei mér veit ekki hvert þetta land stefnir.
Jólauglýsinga byrja í október og jólaskraut er hengt upp í byrjun nóvember. Fyrsta þorrablótið var haldið á veitingastað í borginni helgina eftir þrettándann, aðra helgina í janúar. Síðastliðinn fimmtudag, í þriðju viku janúar fór ég 10/11 og rakst á nokkra kassa af Monu páskaeggjum númer 1. Nú eru verslanir eins og Hagkaup og Leikbær búnar að hrúga upp öskudagsbúningum og byrjaðar að auglýsa í sjónvarpi.

Ég geri fastlega ráð fyrir því að sjá fyrstu rjómabollurnar í næstu viku og sundbolir og stuttbuxur verða eflaust á sumartilboðum um miðjan febrúar. Afmælið mitt verður haldið hátíðlegt í apríl þar sem páskarnir verða löngu yfirstaðnir. Haustútsölur byrja líkegast í maí og ég geri ráð fyrir að halda jólin hátíðleg í September. Ég stefni á að fara á eftirlaun á næsta ári og Valur Kári tekur við forstjórastóli IcelandExpress á því þarnæsta í kjölfar þess að 8 borgarstjóri þess kjörtímabils tekur við embættinu í annað sinn það árið.

miðvikudagur, janúar 23, 2008

Búmm

Áramótalætin eru greinilega ekki búinn. Það er amk nóg af sprengingum niður í miðbæ rétt við
tjörnina.

Ég hef aldrei verið mjög áhugasamur um póletík hvort sem hún er "í borginni" eða á alþingi, en maður getur ekki annað en fylgst með þessu máli (enda ekki fjallað um annað í öllum miðlum). Ég verð nú að segja það að ef maður bar eitthvað traust til borgaryfirvalda fram að þessu þá er það fokið út í veður og vind.

þriðjudagur, janúar 22, 2008

Ekki aftur snúið / Point of no return / Milestone


Síðastliðinn föstudag sat ég fyrir framan tölvuna í annarlegu ástandi. Ég var með músarbendilinn yfir "Send hnappinum" en skalf af innan af einhverri stress-fyrir-sendinga-spennu.

Eftir nokkrar mínútur tók ég mig taki og smellti á örlagahnappinn send. Það má segja að á þeim tímapunkti hafi ég endanlega staðfest að ég ætla að útskrifast í vor. Innan nokkurra sekúndna voru um 150 bókasafns- og upplýsingafræðingar búnir að fá sendan tölvupóst með bréfi og tengli yfir á spurningalista. Sama dag sendi ég líka um 360 umslög með sama bréfi og spurningalista á pappír.


Þessi spurningalisti er semsagt hluti af lokaverkefninu mína. Með því að senda tölvupóst og póst hóf ég formlega að rannsaka starfsvettvang bókasafns- og upplýsingafræðinga. Markmið rannsóknarinnar er að gefa heildstæða mynd af fjölbreyttum og ólíkum starfsvettvangi bókasafns- og upplýsingafræðinga. Ég skoða breytur eins og framhaldsmenntun, tegund vinnuveitanda, starfsþætti, menntunarkröfur starfa og laun.


Það er eitthvað svo "fullorðins" við það að senda út viðamikla rannsókn til heillar starfstéttar sem ég verð senn hluti af ekki síst vegna þess hve mikill áhugi er fyrir þessum upplýsingum. Það sannaðist heldur betur eftir að ég sendi tölvupóstinn því það liðu ekki nema 3 mínútur frá því að ég sendi tölvupóstinn og ég fékk fyrsta símtalið.


Ég get varla hugsað um annað þessa dagana og fylgist nákvæmlega með svörunum sem mjatlast inn. Fyrstu viðbrögð eru mjög góð, 13% búnir að svara á fyrstu 5 dögunum en ég vonast til að margfalt fleiri muni svara í vikunni.


Nú er bara að vera þolinmóður þangað til að alvöru vinnan hefst við að vinna úr þessum gögnum.