þriðjudagur, maí 27, 2008

Hjólað í vinnuna


Ég var mjög duglegur í síðustu viku þegar ég bættist í hóp starfsmanna FOCAL og hjólaði í vinnuna. Ég hjólaði þrisvar í síðustu viku fram og til baka og reif þannig meðaltalið almennilega upp. Það vill nefnilega þannig til að ég á ekki heima í nágreninu eins og flestir. Í síðustu viku hjólaði ég 60km og eyddi rétt um þremur og hálfum tíma í verknaðinn. Málið er að ég þarf að hjóla frá mörkum Vesturbæjar og Miðbæjar að mörkum Kópavogs og Garðabæjar um 10 km leið. Leiðin er ágæt þótt hún sé töluvert meira upp í móti í vinnuna. Þar vegur þyngst Kópavogshæðin sem ég þarf að fara yfir.

Stefnan er að reyna að hjóla 1-3 í viku í sumar þannig að ég stefni á að hjóla að minnsta kosti 500km í sumar. Eins og sannur keppnismaður er allt skráð. Hjólatími, hámarkshraði, meðalhraði, skýjafar, vindhraði, vindátt og rakastig, þannig að ég geti borið saman ólíkar ferðir eftir aðstæðum og bætt mig. Það gerir þetta ennþá skemmtilegra. Það er komið sumar!!!

mánudagur, maí 19, 2008

Farinn, búinn, bless.

Jæja. Í síðustu viku lauk námi mínu við Háskóla Íslands. Loksins. Nú er ég semsagt óformlega háskólamenntaður einstaklingur, en formlega útskriftin verður laugardaginn 14.júní (í amk fjögurra klukkustunda athöfn í Laugardagshöllinni).

Þeir sem ekki vita þá verð ég formlega útskrifaður með BA í Bókasafns- og upplýsingafræði, og má því nota lögverndaða starfsheitið Bókasafns- og upplýsingafræðingur (að tilskyldu leyfi menntamálaráðuneytisins sem þarf að fá).


Og hvað gerirðu með það? spyrja margir. Ég þurfti að minnsta kosti að útskýra það fyrir systur minni fyrir skemmstu en ég er ekki viss um að hún sé nokkru vísari. Það verður örugglega bara efni í heila bloggfærslu að útskýra það. Ég er nefnilega kominn í svona starf þar sem maður þarf að nota allskonar hugtök og "fyrirtækjaorð" til að lýsa því hvað maður gerir. Ekki eins einfalt og að segja "ég er læknir" eða "ég er verkfræðingur". Í örstuttumáli er ég farinn að vinna við ráðgjöf og sem sérfræðingur á sviði skjalstjórnunar hjá hugbúnaðar og ráðgjafafyrirtæki þar sem ég hef verið í hlutastarfi síðasta árið. Í starfinu felst ráðgjöf í skjalamálum hjá fyrirtækjum og stofnunum, kennsla á kerfi fyrirtækisins og hugbúnaðarþróun innan fyrirtækisins. Fyrirtækið heitir FOCAL Software & Consulting og er staðsett í Hlíðarsmáranum í Kópavoginum.


Ég hef mikinn hug á að halda upp á þennan stórmerka áfanga með miklum látum og sameina þannig útskriftar- og afmælisveislu. Það er nokkuð seint í rassinn gripið að fara að leita að sal núna. Ég auglýsi þess vegna eftir einhverjum sem þekkir til eða geti bent á lausan sal laugardaginn 14.júní þar sem hægt er að taka á móti 30-50manns á milli kl 16-01, ekki þurfi að kaupa veitingar með salnum og leyfilegt sé að koma með eigið vín. Ef ég/einhver reddar sal, þá verður stuð, stuð, stuð.



Annars er ég bara voðalega lífsglaður þessa dagana í sólinni og sumrinu, allt gott af frétta af börnum og burum. Harpa varð á föstudaginn formlega 2.árs nemi í ljósmóðurfræði, einskonar ljósmóðurkandídat og strákurinn stóri stækkar sífellt og leikur við hvern sinn fingur.

mánudagur, maí 05, 2008

BA ritgerðin farin úr húsi


Ég skilaði 84bls lokaritgerð í gær: "Rannsókn á starfsvettvangi bókasafns- og upplýsingafræðinga". Skrítin tilfinning. Ég skilaði henni í tvíriti á skrifstofu félagsvísindadeildar. Ég var fyrir örlitlum vonbrigðum því það voru engir lúðrablásarar eða glimmer í loftinu þegar ég rétti skrifstofustarfskonunni eintökin. Ég er kanski ekki búinn að fatta þetta. Maður er buinn að vera að hugsa um þetta sólarhringum saman og á nóttunni hefur mig dreymt suma kaflana og verið hræddur um að rugla þeim í svefni. Kanski er það það að maður hefur alltaf séð fyrir sér takmarkið framundan, ekki að baki.
Skrítið. Mjög skrítið.Ég hlít að fatta þetta. Nú eru bara 3 verkefni eftir. Geðveikt!