föstudagur, mars 24, 2006

Ljósmyndabrosið - fáránlegt en fallegt


Bloggað á MSN Space February 24

Í Dannmerkur ferðinni kynnti Hugi til sögunnar hið óviðjafnanlega Ljósmyndabros. Ljósmyndabrosið er ótrúleg aðferð til þess að líta vel út á mynd með lítilli fyrirhöfn, sama hvernig ástatt er fyrir manni. Þessa aðferð lærði Hugi frá nágrana sínum, Önnu, sem lærði þetta upprunalega af "Americas Next to Model". Hugmyndin er einföld. Sumir myndast illa og oft koma eðlileg bros fáránlega illa út á mynd. Rétt uppsett bros með þessari aðferð getur ekki klikkað. Ljósmyndabros næst með því að fylgja eftir eftirfarandi 5 atriðum:

1. Brosa og teygja brosið örlítið, helst þannig að það sjáist örlítið í efra tannholdið.
2. Fela neðri tanngarðinn með neðrivörinni
3. Halla höfðinu örlítið til hliðar, sirka 5-10%
4. Horfa á myndavélina og hugsa stíft "ég elska myndavélina, ég elska myndavélina".

Þetta virðist einfalt, og nánast undartekningalaust lítur maður fáránlega út, EN, myndavélin skilur hvað verið er að gera.

Þú trúir þessu kannski ekki, en prófaðu að fletta í gegnum eitthvað tískutímarit, eða íslensk blöð eins og Nýttlíf.
Þær konur sem brosa nota nær undantekningarlaust þetta bros, hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað.

Meðfylgjandi eru þrjár myndir. Tvær af Örvari sem sýnir hvernig hann brosir fyrir, venjulega, og eftir, með ljósmyndabrosi. Það er enginn vafi um hvor myndin er betri!
Hin myndin er ein sú besta mynd sem náðst hefur af mér, og hún er 100% feikuð! Merkilegt ekki satt?

Engin ummæli: