miðvikudagur, mars 22, 2006

Út með gæruna?

Bloggað á MSN Space February 04

Nú hefur Ungfrú Silvía Nótt framið sinn flutning í Eurovison. Merkilega gott lag, verð ég að segja. Þrátt fyrir að vera þversnúinn afgangandi Silvíu Náttar, þá gæti ég alveg hugsað mér að sjá hana halda til útlanda fyrir hönd Íslands í aðalkeppnina. Amk vildi ég það mun frekar en sjá fleiri af sjónvarpsþáttunum hennar. Það verður bara að segjast að hún syngur þrælvel, hefur "geislandi" eftirtektarverða framkomu og er með atriði gjörsamlega ólíkt öðru sem komið hefur frá okkur.
Margir, og þá sérstaklega ég, muna eftir þýska sjónvarpsmanninum og hjartabossanum Stefan Raab sem flutti svo eftirminnanlega lagið "Wadde Hadde Dudde Da" sem enn hljómar nokkrusinni í mánuði í græjunum mínum. Þessi Stefan Raab er sjónvarpsgosi og mjög umdeildur í Þýskalandi, en engu að síður fór hann í Eurovison og gerði það bara nokkuð gott og lenti í 5 sæti á meðan við vorum í því 12 með "Tell me!".

Sendu Sivíu og rokkum, skilurðu!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað þýðir að vera þversnúinn afgangandi Sylvíu?
Annars er ég sammála því að ef við ætlum að ruslast upp úr þessari undankeppni er frökenin Íslendinga eina von.

Nafnlaus sagði...

Þetta er svokölluð tvöföld neitun með tvist, eða svoleiðis. Þversnúinn áhángandi er sá sem er ekki fyrir Silvíu en Þverstnúinn afhangandi væri sá sem var alls ekki fyrir hana, en er búið að snúa um þverbak... eða eitthvað. Stundum er líklega bara best að lesa ekki of mikið úr því sem ég er að reyna að segja og taka mér bara eins og ég er... skrítnum manni með undarlegt orðaval.