miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Fallin í valinn

Við Harpa tókum okkur til og urðum veik um helgina. Ógeðslega veik. Viðbjóðslegt. Hausverkur upp á 10 (á skalanum 1-10), eyrnaverkur, ógleði og vanlíðan auk þess sem að í hvert skipti sem maður kyngir er það eins og að kyngja glerbrotum. Skemmst frá því að segja, þá vorum við greind með streptokokka sýkingu, sem er mjög smitandi, og komin á viku pensillínkúr. Ég fer á eftir með Val Kára í strok til að athuga með hann.
Ekki mikil gleði á þessu heimili undanfarna og næstu daga.

UPDATE: Strok úr Val Kára sýndi fram á streptó sýkingu líka. Við erum semsagt öll famelían vígvöllur streppara.

þriðjudagur, febrúar 26, 2008

Þett'er það mesta bull sem ég hef nokkurntíman heyrt!

Við Harpa keyptum loksins Dýrin í Hálsaskógi handa Val Kára. Nokkuð sem er lengi búið að vera á áætlun. Mikki refur og Lilli klifurmús óma nú á hverjum degi við mikla ánægju þess litla. Hann vill iðulega "hlusta á Lilla klifurmús" eins og hann kallar diskinn.

Það er ekki laust við að maður finni fortíðartaugarnar kippa í þegar Bessi Bjarnarson fer hamförum sem geðilli refurinn. Maður leggur eflaust töluvert meiri skilning í leikritið núna heldur en þegar maður var sjálfur lítill.

Nú þegar ég er búinn að hlusta á fyrrihluta leikritsins töluvert oft fer maður að pæla í ýmsum hlutum. Þar á meðal eru praktísk atriði eins og pælingin með piparköku fíaskóið.

Ég hef verið að spekúlera svolítið. Er hægt að kaupa pipar í kílóavís? Á einhver heilt kíló af pipar við hendina? Ég fór á netið að leita að stórum magnpakningum með pipar en fann mest 85gr dúnk með fínmöluðum pipar. Í meðal lítlum piparstauk eru kanski 35gr af pipar. Það þýðir að bakaradrengurinn hefði þurft að tæma um 30 piparstauka til að ná heilu kílói. En, ok, segjum sem svo að bakarar (kökugerðarmenn) eigi pipar í massavís. Er raunverulega hægt að baka uppskrift sem inniheldur heilt kíló af pipar en eina teskeið af sykri? Skyldi pipar haga sér líkt og hveiti eða vera jafn ómeðhöndlanlegur og sandur? Hvernig væri piparkökur sem þessar á bragðið? Það er alveg spurning að fara og athuga þetta. Á einhver kíló af pipar til að lána mér?

Þeeegaaar piparkökur bakast...

fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Notandi framtíðar

Það verður ekki af litla manninum skafið. Ég fór á Skífu útsöluna fyrir helgi og rakst þar á
tölvuleikinn "Doppa Bregður á leik", en það er einfaldur tölvuleikur hugsaður fyrir leikskólaaldur (3+). Í leiknum er unnið með form, liti, tölur, minni og fleira þroskandi og örvandi. Hann var á sérstöku tilboðsverði heilar 499kr. Ég keypti hann og reyndar líka Glóa og lestrarleiki tvo seman í pakka sem ég geymi þangað til síðar á næsta ári.

Þegar ég kom heim gaf ég stráknum leikinn við mikla ánægju. Ég gróf upp litla usb mús sem passar í lófa hans og síðan settumst við niður við tölvuna og ég sagði honum að Doppa væri leikur sam hann ætti að stjórna. Það tók smá tíma fyrir hann að skilja hvernig músin hreyfist og að fatta að smella á réttan músartakka. Valur Kári er svo ofsalega ánægður með leikinn og getur dundað sér tímunum saman við að para saman form, lita myndir, finna doppu, meta stærðir og er orðinn fullfær á að velja hvort hann vilji halda áfram, hætta eða fara á milli valmynda.

Hann er svo áhugasamur að í gær kaus hann frekar að leika sér í tölvuleiknum heldur en að horfa á Þorlák og Dóru í sjónarpinu (og það verður að teljat MJÖG merkilegt). Við Harpa erum líka sammála um það að við erum mun ánægðari að sjá hann dunda sér við tölvuleik þar sem hann þarf að hugsa og taka virkann þátt í stað þess að sitja hugsunalaus fyrir framan sjónvarpið.

Í morgun eru liðnir um 4 dagar síðan hann fór að nota leikinn sjálfur. Hann vaknaði klukkan sjö
í morgun (við litla gleði okkar Hörpu). Hann vakti okkur en fór svo sjálfur fram á meðan Harpa
barðist við að koma sér á fætur. Stuttu síðar ýtir Harpa við mér hlægjandi. Valur Kári gerði sér lítið fyrir, fór fram, kveikti á tölvunni, náði í músina, opnaði Doppu leikinn og fór að leika sér alsæll, áður en harpa kom fram.

Í stuttu máli, þá mæli ég hiklaust með þessum leik fyrir alla litla hnokka og hnátur.
(Leikurinn er auðkeyranlegur, ekki nema 25mb í flashformi sem má færa inn á harða diskinn. Vel og vel 499kr virði). Hér eru frekari upplýsingar um leikinn í fyrirlestri nemanda við kennaraháskóla Íslands.

miðvikudagur, febrúar 20, 2008

Spjarir

Við Harpa tókum okkur til og sóttum öll gömlu og litlu fötin af Vali Kára sem við vorum búin að pakka niður og setja í kjallarann hjá mömmu og pabba. Við höfum lánað talsvert af fötum og þess vegna riðlaðist skipulagið í kössunum eftir því hvenær hvaða pokum var skilað og hvert þeir fóru.

Það kom fljótt í ljós þegar ég byrjaði að bera kassana upp úr kjallaranum og það er ekkert smá magn af fötum sem drengurinn hefur gengið (bókstaflega) í gegnum. Fatakassarnir komust naumlega fyrir í bílnum með annað farþegasætið lagt niður.

Mér reiknast um það bil til að við eigum um 460 lítra af fötum (miðað við fjölda kassa og hvað þeir taka). Síðan getum við hugsað út í það að hér erum við bara að tala um þau föt sem við höfum pakkað niður. Ég hugsa að þetta sé ekki nema í mesta lagi 2/3 hlutar af fötum sem hann hefur átt. Margt hefur eyðilagst, verið hennt, gefið og týnst. Og svo getum við líka bætt við hálffullri kommoðu af fötum sem hann notar núna... og hann er bara 3,5 ára. Hann á eftir að stækka næstu 15 ár! Við erum að tala um mikið af fötum!

p.s. Ef það gæti verið að þið liggið á einhverjum fötum frá okkur sem þið eruð hætt að nota væri fínt að fá þau til baka svo við getum pakkað þeim á réttan stað.

fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Langlínusamband

Það er nú bara þannig að við hjúin erum einskonar þjónustumiðstöð nákominna á okkar sviði. Ef einhvern í fjölskyldunni eða aðra góða vini vantar faglega ráðgjöf (eru með spurningar og vantar svö) í sambandi við heilsu, lyf eða barneignir þá oft hringt í Hörpu. Ef einhvern í fjölskyldunni eða aðra góða vini vantar tölvuaðstoð þá er oft hringt í mig. Við Harpa erum fús að veita alla þá aðstoð sem við getum, enda höfum við bara gaman að því að geta ausið úr okkar viskubrunnum.

Í fyrradag aðstoðaði ég góða vinkonu mína við að setja upp gott og "gilt" heimildaskráningarforrit. Með því setti ég nýtt met og stækkaði þjónustusvæðið mitt umtalsvert. Ég hafði áður þjónusta Ísland og Þýskaland (á meðan systir mín bjó í Þýskalandi) en núna gerði ég mér lítið fyrir, þræddi koparvíra og ljósleiðara yfir þvert atlandshafið og tók yfir stjórnvölin í tölvu á vesturströnd Bandaríkjanna. Svonan er tæknin stórmerkilegt.

Næsta verkefni, uppsetning á tveimur fartölvum, bíður síðan í kvöldsins.

föstudagur, febrúar 08, 2008

Áhugavert sjónvarpsefni á RÚV í kvöld

Klukkan 21:15 verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins afar áhugaverð kvikmynd fyrir verðandi bókasafns- og upplýsingafræðinga.

Það er stórmyndin: The Librarian: Quest for the Spear (eða Bókavörðurinn - Leitin að spjótinu).

Hér er á ferðinni bandarísk spennumynd frá 2004 sem fjallar um bókavörð sem reynir að endurheimta töfragrip sem stolið er af safninu þar sem hann vinnur og nýtur hann aðstoðar konu sem er vel að sér í bardagaíþróttum. Leikstjóri er Peter Winther og meðal leikenda eru Noah Wyle, Sonya Walger, Bob Newhart, Kyle MacLachlan og Kelly Hu.

Myndin þykir gefa einkar greinargóða mynd af starfsvettvangi bókasafns- og upplýsingafræðinga. :Þ

IMDB.com gefur myndinni 5,9 af 10 mögulegum stjörnum (http://www.imdb.com/title/tt0412915/)

Frekari upplýsingar um myndina má finna hér: http://en.wikipedia.org/wiki/The_Librarian:_Quest_for_the_Spear

Góða skemmtun.


ps. þeir sem missa af henni í sjónvarpinu geta nú keypt hana á DVD af AMAZON

mánudagur, febrúar 04, 2008

Minn dagur í dag

Dagurinn í dag gleður mig mikið. Mér finnst það fallegt af samfélagi nútímans að halda daginn í dag hátíðlegan til heiðurs fólks eins og mér. Það er alveg ljóst að það er ekki til neinn "slána"dagur. Spurning hvort bakarí ættu að taka upp á því að baka einhver sérstök brauð sem þau geta kallað Slána?