mánudagur, mars 20, 2006

Nýtt ár, ný fyrirheit

Boggað á MSN Space January 09

Kæru vinir nær og fjær, gleðilegt nýtt ár!

Ég vil þakka fjölmargar nýárskveðjur sem bárust mér og fjölskyldu minni. Ég vona að ég muni eiga tækifæri til að hitta ykkur sem allra oftast á nýju ári. Það vitum við að ekki hittumst við nógu oft á síðasta ári!
Jólin og áramótin voru einkar ánægjuleg þetta árið. Það var svolítið stress rétt fyrir jólin að klára allt sem gera þurfti á nokkrum dögum milli jóla og prófa, en þó reddaðist allt svo ég gat slakað á með fjölskyldunni á Þorláksmessu. Chillað í friðargöngunni og leyft jólaandanum að svífa yfir og allt um kring.
Hátíðirnar voru sérstaklega óvenjulegar hjá mér vegna þátttöku í sjónvarpsþættinum. Það kom mér samt reglulega á óvart hve auðvelt þetta var. Ég verð hreinlega að segja að mig langaði alls ekki í stórann hluta af óhollustunni. Það virðist vera að þegar maður er búinn að sleppa óhollustunni og öllum sykurviðbjóðinum í ákveðinn tíma þá snarminnkar eða nánast hverfur löngunin með.

Það gleður mig líka að segja frá því að viktin hefur stöðug farið lækkandi síðan í nóvember, frá 100gr upp í 250gr. pr viku en auk þess er ég að vera algjör massi... eða svoleiðis. Það er reglulega gaman að sjá þvottabretti myndast á maganum... verst er hve margra ára þvottur er fyrir á brettinu.
Fyrsta vika nýja ársins fór í veikindi Hörpu og almenna leti, en nú er skólinn hafinn, stefnan tekin á að ná öllum fögum og halda áfram að segja skilið við fitukílóin og óhollustuna.

Uppskrift vikunnar: Djús og snakk milli mála

1/5 glas Smoothie Pack (Mæli t.d með Peach bragði)Upp í 1/3 glas af eplasafa (allra helst Floridana eplasafa)Upp í 4/5 af ísköldu vatniHrært velFyllt upp í topp með klökum
Einnig er frábært að hræra í eitt bréf af Green Tee extract og þá ertu komin með þrusu orkudrykk.

Þessi blanda er frískandi og orkugefandi og auk þess bráðholl með um 1/5 af ráðlögðum dagskammti ávaxta.

Með þessu er æði að muncha á lítilli skál af Kasjú hnetum.

Engin ummæli: