föstudagur, mars 24, 2006

Heill sé þér fósturjörð


Bloggað á MSN Space February 18

Jæja, þá er maður óðum að verða kominn heim frá Dannmörku. Fyrsti hlutinn af mér lennti rétt um miðnætti á Sunnudag en ég er búinn að vera að safna mér saman síðan þá. Það er nú nefnilega tilfellið að maður einhvernvegin nær ekki sínum 8 tíma svefni í helgarferð til útlanda. Ég svaf reyndar mest Smaladrengjanna nóttina áður, eða rétt um 2,5 klst, en síðan var komið að 3 tíma flugi, tveggja tíma hlaupi eftir endilöngu Strikinu (það er smá spotti í H&M sjáðu til). Loks var rétt um 5 tíma akstur yfir á Jótland þangað til við enduðum loksins á áfangastað, í Söndeborg.

Eftir að hafa eytt laugardeginum í afslöppun og labb í galtómum miðbæ Söndeborg, því að sjálfsögðu er flest lokað um helgar í svona smábæjum, hófst Þorrablót Íslendingafélagsins. Hlaðborðið var all svakalegt og súrmaturinn og hákarlinn hefði fengið nasahárin á hefðbundnum Dana til að sviðna. Nóg til af öllu og áfengi vel útlátið. Smaladrengirnir slógu aldeilis rækilega í gegn og á ég varla lýsingarorð yfir viðbrögðin sem við fengum. Það er reyndar spursmál hvort við vorum fyndnir eða hlægilegir, en aldrei höfum við þurft að gera jafn lítið til að fá jafnmikil viðbrögð í lok atriðisins.
Eftir giggið streymdi að okkur þakkir og óskir um að skemmta við ýmis tilefni í sumar... þó aðallega brúðkaup og við vonum að það verði af þeim báðum, þó ég held að Hugi myndi ekki hriggja það ef dömurnar yrðu aftur á lausu.

Bar Íslendingafélagsins var sá ódýrasti sem ég hef séð og gat ég því ekki stillt mig til að kanna hann aðeins. Snapsar og gosbjór runnu ljúflega niður við undirspil Högna, hljómsveitar Daníels, og verð ég að segja að þetta var talsverð vinna fyrir lifrina mína, enda er hún ennþá í Dannmörku að vinna úr þessu. Er væntanleg með sjúkraflugi á næstu dögum, en samt vonandi fyrir föstudag þegar ég þarf á henni aftur að halda. Hún verður að bíða aðeins lengur eftir hvíldarinnlögn á Landakot.Högnarnir fengu mig síðan í lið með sér og sönt ég með þeim "Til hamingju Ísland" við góðar undirtektir og síðan Danska lagið, Diskó friskó og Sirkus Geira Smart. Ég verð líklega ekki beðinn um að syngja með þeim aftur.

Á sunnudagsmorgun fórum við í lítinn bíltúr og skruppum í morgunmat í Þýskalandi.Það var nefninlega bara 45mín akstur til Flensborgar.

Ferðin var í stuttu máli mjög vel heppnuð í alla staði. Mikið gaman, mikið fjör, mikið stuð, mikið djamm, mikill akstur og mikill bjór.

Í ferðinni komu upp fjölmörg áhugaverð málefni, þó Múhameð og það að "heilsa lífverði drottningar" hafi vissulega sett mark sitt á ferðina". Málefnin voru svo mörg áhugaverð að ég er líklega kominn með efni í blogg út árið. Meðal málefna sem ég mun eflaust taka fyrir áður en langt um líður:

Svitabönd - praktísk og góð
Ljósmyndabrosið - ótrúlegt en það virkar
Hópur karla + bjór + útlönd = grófar rembur

Engin ummæli: