föstudagur, mars 24, 2006

Mikilvægt að eat bygg


Bloggað á MSN Space March 17

Pistillinn hér að neðan birtist föstudaginn 3.mars í Blaðinu og fjallar um þáttinn sem ég var í:
--------------------------------------------------------------------------------

Mikilvægt að eat bygg
atli@bladid.net

Ég horfði á alveg stórfenglegan þátt á Skjá einum um daginn. Þátturinn heitir Heil og sæl og byggist á því að breyta mataræði fólks og þar af leiðandi að láta því líða alveg rosalega vel, því eins og allir vita á maðurinn að nærast á korni og vatni en ekki rauðu kjöti sem er á góðri leið með að útrýma heiminum.

Þáttarstjórnendurnir tveir, ljóshærð kona, fersk og snaggaraleg og karlmaður, hávaxinn, útlenskur með skalla, eru frekar fyndnir karakterar og efni í sér pistil ef út í það er farið. Hún er ótrúlega brosmild og skýrmælt, eins og þáttarstjórnendur eiga að vera – nema kannski svona, tja, einum of. Hann talar íslensku og ensku til skiptis að mikilli snilld. Dæmi “it’s very mikilvægt að eat bygg.” Það var alveg frábært að fylgjast með parinu okkar elda ofan í viðfangsefni þáttarins, karlmann á milli þrítugs og fertugs, á meðan hann sat hjá þeim og reyndi að láta eins og hann kynni að meta byggréttinn sem þau voru að elda ofan í hann. Fyndnara var samt að sjá aðalréttinn á boðstólum, byggpizza með “löglegri” tómatsósu, lauki og ferskum laxi. Ég trúi ekki að þessi pizza hafði verið góð en fyndin var hún.

Þátturinn lét mig ekki vilja breyta lífi mínu í áttað hollu og góðu mataræði, en fjandinnhafi það, þátturinn náði að skemmta mér vel og ég hló dátt á meðan ég kjamsaði á venjulegri pizzunni minni með allri óhollustunni og viðbjóðnum.

--------------------------------------------------------------------------------

Ég vil koma því til skila að ég er svo sannarlega EKKi milli þrítugs og fertugs, rétt hálfnaður upp í þrítugt. Einnig vil ég koma til skila að speltpizzan var furðulega góð, jafnvel þótt fiskur væri á henni og enginn ostur. Það er hinsvegar álitamál hvort kalla má réttinn pizzu. Bankabygg grauturinn var fínn en ekki nærri jafn góður og pizzan. Mæli með að þið prófið. Sjá uppskrifitina og þáttinn á http://www.skjarinn.is/

Engin ummæli: