föstudagur, mars 06, 2009

Himneskur Mo-mini

Ég á mér uppáhalds drykk. Það myndi ekki kallast æskilegt að drekka hann á hverju kvöldi. Það vildi þannig til að ég átti eitt kvöldið til í ísskápum talsvert af myntu, all nokkrar lime og óseðjandi þorsta. Ég er útsjónarsamur og tókst að búa til æðislegan drykk sem hægt er að drekka á hverju kvöldi. Uppskriftin er einföld:

Sódavatn án bragðs (mæli með að eiga sodastream tæki)
Myntulauf (10 til 20 lauf eða af 2 greinum)
2 Lime sneiðar
Klakar eftir smekk

Gott er að stappa (crush‘a) aðeins saman lime‘ið og myntuna til þess að losa safan úr myntunni.

Þessi drykkur er æði, bæði ferskur og góður og auk þess fallegur ef látinn í glært ílát. (Ath að á myndina vantar myntuna, en ég var víst búin með boxið þá þessum tímapunkti).

Þögnin er rofin

Í dag var eins og lítil mýfluga hefði villst inn í kollinn á mér og rekið sig í eitthvert gamalt minnisspor því allt í einu fór ég að hugsa: "átti ég ekki einhvern tíman blogg?"
Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að vissulega er það svo, og bara ekki amalegt blogg. Eini gallinn við það er að það hefur heldur fækkað færslum síðan í lok september á síðasta ári. Það er greinilegt að kreppan lagðist víðar en maður hefði ætlað. (Það að hætta að vera með fartölvu í tímum í skóla gæti líka hafa haft einhver áhrif). Maður hefur svo mikið að segja þannig að það er alveg óþarfi að brenna inni með allt sem er að gerast. Ef einhver nennir að lesa, þá fínt, annars verður gaman að lesa þetta eftir 30ár áður en það fer á þjóðskjalasafnið sem söguleg heimild.