mánudagur, mars 20, 2006

Góður, Ilmur!

Bloggað á MSN Space January 23

Ég vona að sem flestir hafi haft tækifæri til að sjá skemmtiþáttinn Stelpurnar á stöð 2 í gær. Þar átti Ilmur Kristjánsdóttir stórleik, jafnvel Eddu- eða óskarsverðlauna leik í lokaatriði þáttarins.
Atriðið gengur út á að hjúkrunarkona (Ilmur) er að reyna að spila leikinn Frúin í hamborg. Fyrri tilraunir í þættinum hafa allar mistekist hrapalega. Hún segist hafa keypt viftu og er spurð hvort hún hafi verið hvít. Hún hikar... og hikar... og hikar og á meðan rennur allur texti í lok þáttarins, eða um 2-3 mínútur. Allan tíman er hún gjörsamlega einbeitt og hikandi en þegar síðasti textinn rennur af skjánum segir hún: ... öh... "já".
Skemmst frá því að segja tók ég ægilegt hláturkast því svipurinn á henni þessar nokkru mínútur er gjörsamlega óborganlegur, en ég skil ef þetta virðist mjög ófyndið í textaformi á bloggi. Þátturinn er endursýndur næstkomandi fimmtudag um ellefuleitið fyrir þá sem eru með eða hafa aðgang að stöð 2. Ekki missa af því, og ekki missa af þessum frábæra þætti, ef út í það er farið!

Engin ummæli: