Langt síðan ég skrifaði síðast...

Bloggað á MSN space October 11
Jú, ég er enginn eftirbátur annarra bloggara, en nú eru nær 3 mánuðir síðan ég kom skilaboðum frá mér. Er ekki tími á smá updeit?
Strákurinn:
Valur Kári litli eru ekki lengur svo lítill, búinn að eiga eins árs afmæli og er nú að verða fjórtán mánaða í næstu viku. Hann er ekki bara farinn að hlaupa um allt heldur er hann farinn að klifra upp um allt. Hann notar allar mögulegar græjur svo sem bílinn sinn, stofupulluna, kassa, bala, stólinn sinn og hvað annað sem býðst til að klifra upp í sófa, á stofuborðið, upp í eldhús og tölvustóla, rúmið og hefur jafnvel reynt að klifra upp í stofuhillurnar. Þá má sko ekki skilja hann neinstaðar eftir einan. Þessu brölti og hlaupunum fylgja jafnan skellir, kúlur og einstaka sár á vör eða tungu, en allajafna er hann mjög snöggur á fætur aftur og stefnir á næsta tind.
Orðaforðinn eykst með hverjum deginum sem líður. Hann verður altalandi fljótlega ef það heldur áfram sem horfir. Orð eins og datt, mata (matur eða borða), ekka (drekka), iska (fiskar), beya (bleyja) mih (kisa eða mjá), mamma, pabbi, mma (amma) ave (afi), Hulda (móðursystir), lúlla, Kata (bangsinn Kata Kanína) og ótal fleiri eru notuð oft á dag. Hann er farinn að láta vita þegar hann er svangur eða vill drekka með því að segja mata eða ekka og samkjaftar ekki allan daginn, því barnamálið í bland við kunnugleg orð er allsráðandi allan liðlanga daginn. Ef við bara skyldum hvað hann er að segja!
Heilsufarsástand: VK hefur verið með kvef og hósta meira og minna frá því í ágúst. Eyrnabólga leit við og upp hafa komið niðurgangstímabil með heiftarlegum bruna á rassinum. Tveir nýjir jaxlar í efrigóm eru komnir og telja tennurnar nú einn tug, 10stk. Nú á mánudag kom í ljós að Kári er kominn með lungnabólgu og er kominn á lyf við því. Vonandi fer þessu veikindatímabili að ljúka. Við Harpa hefðum ekkert á móti óslitnum nætursvefni.
Valur Kári er að verða krakki. Hann er ekki lengur smábarn sem þarf að færa úr stað, halda á, gefa mat, skipta og sinna öllum stundum. Hann borðar sjálfur þegar matur er lagður fyrir hann, kýs sjálfur að labba inn í herbergi að leika sér með Fisher Price dótið og lætur vita þegar hann vill eittthvað. Áður en ég veit af verður hann farinn að pirrast yfir því að ég sé að skipta mér af því hvað hann gerir!
Ég hvet alla til að kíkja á strákinn hér: http://www.hi.is/~hov/glokollur/
Ég:
Nú í september byrjaði í í Háskóla á ný, nú í Háskóla Íslands í Viðskiptafræðideild. Þar hyggst ég leggja stund á viðskiptafræði með áherslu á Upplýsingatækni og ætla mér að standa mig einstaklega vel. Tími til að hætta öllu kjaftæði og fá sér einhverja gráðu. Námið gengur ágætlega sem af er þó veikindi Val Kára og almenn leti hafi aðeins dregið mig afturúr. Úr því verður bætt fljótlega. Annað er svosem ekki að frétta, svoleiðis, enda taka skólinn, VK og tiltektir á heimilinu mestan tíma minn.
Ég læt kannski ómerkilegri umfjallanir um hverstakslega atburði flakka síðar ef ég verð duglegur.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli