Halltu drykknum köldum við tölvuna!


Bloggað á MSN Space January 17
Það verður að segjast að margt heimskulegt og gagnlaust hefur verið fundið upp gegnum tíðina en nú loksins hefur heimskan og letin farið langt út fyrir endimörk sín, svo langt að vit er komið í uppfinninguna aftur. Nú er hægt að fá USB tengda kæliplötu fyrir gos eða bjórdósina þína sem heldur drykknum köldum við nákvæmlega 7.22°c. Græjan kallast USB Beverage Chiller frá
coolIT.
Það sér hver maður að þarna er fullkomin græja á ferðinni. Hver kannast ekki við það vandamál að vera að horfa á bíómynd í fartölvunni með bjór við hendina sem verður volgur eftir skamman tíma? Allir tölvunördar og leikjafíklar sem hafa farið á LAN munu festa kaup á svona græju til að kæla niður kókdósinar! Svona græja fæst nú í BT og kostar litlar 3.999krónur! Ég þarf sjálfur að sitja á höndunum á mér að bruna ekki út í búð til að kaupa svona... þó ég drekki reyndar hvorki kók nei vatn... en ég gæti haldið vatninu köldu!!
Nánar um græjuna hér:
http://www.coolitsystems.com/index.php?option=com_content&task=view&id=84&Itemid=30

Engin ummæli:
Skrifa ummæli