Jólalagið og stutt ágrip
Bloggað á MSN Space December 12
Ég samdi nýtt jólalag í samvinnu við félaga mína í Smaladrengjunum. Rokið var í heimaupptökur til að koma laginu inn í jólalagasamkeppni Rásar 2. Því miður komst lagið ekki í úrslit. Næsta lag að ári verður þá bara að vinna. Lagið heitir "Einn dagur til jóla" og fjallar á dramatískan hátt um örvæntingu eiginmannsins þar sem hann hleypur upp og niður Laugarveginn á síðustu stundu í leit að jólagjöf handa konunni Hlustið og sækið lagið hér:
Hlusta
Síðustu vikur í stuttu máli:
Matarátakið er hafið. Fengum helling af vörum til að byrja með, bæði mat (tvo stóra kassa af ýmsu merkilegu), risa wok pönnu á tveim hæðum og loki og leir-ofn pott (rummeltopf). Þetta gengur merkilega vel, hætt að langa í nammi og gos en borða í staðin mikið magn ávaxta, grænmetis og ýmissa próteina. Mæli með að prufa 2 vikna afsykrun. Meðfylgjandi mynd er af meirihluta varanna sem við fengum.
VK var greindur með voðalega leiðinlega kokka í nefholi sem eru orsökin á bak við langtíma kvefið og hóstann, eyrnabólgur og lungnabólguna. Fórum með hann í ofnæmispróf til að fullvissa okkur um að hann hefði ekki ofnæmi fyrir pensillíni, það ver ok svo nú er hann kominn á dúndur pensillín og veikindi vonandi á bak og burt. Hann er orðinn svo skarpur og er á augljósu þroskaskeið. Það eru nokkur ný orð á hverjum degi og hann apar allt uppeftir manni eins og páfagaukur. Það styttist óðum í að hægt verði að halda uppi samtölum við hann.
Nú er prófatörnin hafin hjá mér. 1 próf búið, 4 framundan. Er alveg á haus og allt heimilið líka, ef út í það er farið. Enda er Harpa líka í prófastússi. Hún er þó amk búin á morgun, þriðjudag. Ég er til f**** 21.des. Heldur skemmtilegt eða hitt óheldur!Verð að láta þetta duga í bili. Þarf að fara að lesa. (Úff ímyndið ykkur ef ég hefði haft tíma, þá hefði þetta uppdeit verið fleiri blaðsíður).

Engin ummæli:
Skrifa ummæli