laugardagur, mars 18, 2006

Óstöðvandí ást!


Bloggað á MSN space October 12

"Ó hve þú er yndislegur" sagði Sigrún"Nei, þú er svo yndisleg að ég get ekki hamið mig" sagði Kolbeinn mjúkum rómi"Ég veit ekki hvað ég á að segja, þetta er svo óvænt, ég bara...""Ekki hugsa segðu bara já! Þú ert mér allt, fallegir langir leggir þínir, augun þín tindrandi eins og speglar í öllum regnbogans litum, þú ert engill með gegnsægja vængi" sagði Kolbeinn og færði sig nær."Kolbeinn minn kæri, ég get ekki staðist suðið í þér. Þú ærir mig og tælir mig. Ég ætlaði aldrei að binda mig strax, en þú... þú ert of góður til að ég geti sleppt þér" sagði Sigrún og horfið hugfangin á Kolbein."Þú ert fullkomin móðir, börn okkar munu verða fullkomin og við munum eiga farsælt líf saman. Ekkert getur stöðvað okkur. Kondu nær mín heitasta ást" sagði Kolbeinn og flaug í faðm Sigrúnar. Þau snéru rössum saman, elskuðust í nokkrar sekúndur og áður en langt um leið verpti hún fjölda eggja. Áður en dagur gekk til viðar horfðu þau stolt á fjölmarga syni sína og dætur fljúga út í heiminn. Þau héldust í loðnar fætur og kölluðu til barna sinna að skilnaði: "Gætið ykkar á flugnaspaðanum ógurlega!

Engin ummæli: