Svartasti Drekinn - 1 Kafli
Bloggað á MSN space June 07
Einu sinni fyrir langa löngu í landi langt langt í burtu bjuggu gömul hjón í koti sínu. Kotið var lítið og lágt aðeins 350 fermetrar með tvöföldum bílskúr, sundlaug og 2 heitum pottum. Þau áttu voðalega erfitt með að eiga í sig og á og urðu þess vegna að eta styrjuhrogn og humarhala í hádegismat en nautasteikur, fasana og strútakjöt í kvöldmat sem skolað var niður með eðalrauðvínum og 60ára gömlu viskíi. Gömlu hjónin Sigurgeir (72) og Gunnvör (19) reyndu þó að vera hamingjusöm þó þröngt væri í búi. Sigurgeir átti þrá syni úr fyrra hjónabandi. Þeir hétu Sigurvís (35), vaxtaræktartröll og hreystimaður mikill, Huginn (31), fjármálaséní með MBA og mastersgráðu í markaðsfræðum, og Bö (21) sem var stytting á Böldungur. Bö steig ekki mikið í vitið að því sem Sigurgeiri fannst. Hann gerði ekkert allan daginn nema að hanga í leikjastónni að spila tölvuleiki á Xbox tölvunni sinni þrátt fyrir að Sigurfinnur hafi margítrekað reynt að koma honum til náms í hugvísindaverkfræði, en það var einmitt rétta námið til að undirbúa sig til að taka við markaðþróun og nýsköpun í fyrirtækjarekstri Sigurfinns. Sigurfinnur var nefnilega forstjóri og eigandi stærsta viðskiptaveldis landsins, KÚL (Korn Útgerð Langtíburulands). Þar störfuðu bræður hans, Sigurvís við handrukkun og Huginn við markaðsrannsóknir og viðskiptaáætlanagerð. Bö hafði þó ekki sýnt mikinn áhuga á því að starfa hjá föður sínum og að lokum hafði Sigurgeir gefist upp á honum.
Þá víkur sögunni til Kóngs Langtíburtulands (53). Kóngurinn var einstaklega feitur maður eftir margra ára ofát á Bratwurst pulsum. Hann var fjórskilinn að borði og sæng en var á leiðinni í sitt fimmta hjónaband. Brúðurin hét Gilitrutt (165), einstaklega stórgerð kona sem hafði komið einn daginn labbandi ofan úr Langtíburulands fjallgarðinum og kynnt sig sem Prinsessuna af Ótrúlegaofsaríkalandierekkiaðplata. Þá hafði kónginum litist vel á að eignast Prinsessu úr ríku landi og bað hann Gilitrutt að giftast sér sem hún játti samstundis með ógurlega breiðu brosi.
Kóngurinn átti eina dóttir, Sólbrómafríði (18) frá þriðja hjónabandi. Hún var yndislega falleg og pen prinsessa, skynsöm, greind og í raun allt það sem faðir hennar var ekki. Sólblómafríður var ekki sátt við fyrirætlanir föður síns. Hún hafði það ægilega á tilfinningunni að Gilitrutt hefði eitthvað óhreint í pokahorninu. Hún gat ekki sagt nákvæmlega hvað það var, en eitthvað var virkilega ekki eins og það átti að vera. Hvort það var sú staðreynd að Gilitrutt var 2.3 m á hæð eða að hún blótaði á óþekktu tungumáli sem hljómaði svipað og þegar steinhnullungum er núið saman vissi hún ekki. Hún hafði margsinnis ætlað að hitta á Gilitrutt eina í garðinum til þess að spyrja hana hvaðan hún væri en Gilitrutt hélt sig alltaf innandyra á sólríkum dögum lokuð inn í herberginu sínu með alla gluggahlera lokaða.
Eina nótt þegar Sólblómafríður skrapp fram úr rúminu og stefndi inn á klósettið, sem var í hinum kastalans, heyrði hún í Gilitrutt vera að tala við einhvern út í garði. Sólblómafríður gat ekki staðist freistinguna og læddist út í garð til að hlera samtalið. Þá heyrði hún Gilitrutt segja við skuggalega manneskju: "Nú er kóngbjáninn búinn að bíta á agnið. Hann heldur að ég sé frá voðalega ríku landi en veit ekki að ég er tröllskessa. Honum á sko eftir að bregða þegar hann kemst að því að ég ætla að éta hann og bjóða svo öllum vinum mínum í Tröllavisionpartí þar sem allir geta étið mannfólkið í ríkinu eins og þeir vilja". "Ó NEI!" æpti Sólblómafríður áður en hún gat stöðvað sig. Gilitrutt snéri sér við og sagði "Jæja, er það ekki litla prinsessan. Ég get ekki leyft þér að vara neinn við þessu. HAAWWWKGGGEEEAAAAHHHH". Tröllskessan gaf frá sér ógurlegt hvæs svo allir í kóngshöllinni vöknuðu. Kóngurinn hljóp út í glugga til að sjá hvað væri að gerast og sá þá hvar ógurlegur stór biksvartur dreki steypti sér niður í kóngsgarðinn og hrifsaði litlu yndislegu fallegu prinsessuna með sér og flaug síðan í átt að Langtíburulands fjallgarðinum.
Hvað kemur fyrir hugrökku prinsessuna?Mun Kóngurinn giftast Gilitrutt?Mun Gilitrutt nota sósu á kónginn?Hvað koma kothjónin og bræðurnir þessu máli við?
Kíktu við síðar og fáðu mögulega svar við þessum spurningum í þessu ægilega spennandi, vel skrifaða leirburðs-framhaldsævintýri.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli