laugardagur, mars 18, 2006

Fjórðungur úr öld fallinn í áranna skaut


Bloggað á MSN space July 01

Jæja, vinir og vandamenn. Sá merkis atburður átti sér dag síðastliðinn mánudag, 27.júní að ég átt aldarfjórðungs afmæli. Það hefur legið fyrir í nokkur ár að ég myndi ná þessum aldri og hefur á stundum hvílt þungt á mér. Í byrjun sumars var mér það ljóst að ekki yrði þessi afmælisdagur flúinn, en þótti mér þó langt vera þangað til. Síðastliðinn laugardag rann upp fyrir mér að aðeins tveir dagar væru í téðan afmælisdag og áður en ég vissi vaknaði ég klukkan 7, við Val Kára og var þá orðinn fullra 25ára. Merkilegt nok fann ég litla sem enga breytingu á mér, nema hvað að ég fékk dýrindis óvæntan morgunmat, egg, beikon og breskar pulsur (allir sáttir við það nema kanski kransæðarnar). Ég get ekki sagt að ég sé eldri eða vitrari.!?

Allavega, maður á nú bara 25.ára afmæli einusinni, nema náttúrulega að maður ljúgi til um aldur sinn, og að því tilefni ákvað ég að sleppa afmæliskökuboði, eins og ég hef haldið undanfarin ár, og bjóða öllum sem vilja koma í Afmælispartý næstkomandi laugardag. Frekari upplýsingar um þetta partý má finna á http://www.aridanditilkynning.tk/.
Afmælið er haldið fyrstu helgina í júlí og munu að þeim orsökum ekki allir koma, en sama er mér, það verður bara meira stuð og meira að drekka fyrir þá sem koma. Ég er vanur því frá barnsaldri að fáir komi í afmælið mitt, það kom meira að segja einusinni fyrir að aðeins 1 komst í afmælið, en það er önnur og dramatískari saga sem ekki verður sögð hér.

Ég þakka hlýjar óskir, skeyti og pakka sem bárust á og í kringum afmælisdaginn, sjáumst heil á laugardag!

Viðauki:
Ég fletti upp að gamni mínu tímaritinu "Fréttir frá Íslandi" (http://www.timarit.is/) sem gefið var út 100 árum fyrir fæðingu mína, 1880. Þar komst ég að því að margir merkilegir hlutir gerðurst það ár:
* Þetta ár staðfesti konugurinn barnauppfræðingarlögin "... er prestum gjört að skyldu að sjá svo um, að öll þau börn, er til þess virðast hæf fyrir greindar sakir, læri að skrifa og rikna svo, að þau læri fjórar höfuðreglur í heilu og brotum. ..."
* Bygging Alþingishússins lauk "... var ákveðinn 9. dagur júlímánaðar til þess að leggja hyrningarstein hússins, og var það gjört með hinni mestu viðhöfn ..."
* Útför Jóns Sigðurssonar. Lík Jóns og konu hans flutt heim og færð við mikla og viðrulega athöfn til hinstu hvílu.

Hugsa sér að þetta hafi gerst þó ekki nema 100 árum áður en ég fæddist!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

OMG, litlibró orðinn stór!!! - July 08 10:13 AM