Leðurklætt Líferni

Bloggað á MSN space May 06
Við Harpa tilheyrum nú alveg sérstökum eðlum hópi heimsborgara. Við höfum sagt skilið við fjölskyldu djásn Hörpu, sem hefur fylgt henni í yfir 20 ár og veitt henni, fjölskyldu hennar, mér, vinum okkar og fjölda annarra ómældar ánægju stundir. Já, gamli góði rauði, mjúki, þægilegi, (rifni) sófinn fór út um svaladyrnar og liggur andvana úti í garði. Í hans stað eru komið "gegnheilt" eðal ekta leður sett af miklu kvaiítet, þó það sé nú reyndar ekki nýtt og þarfnist smá þrifa. Þetta margblessaða sett setur aldeilis nýjan sparilegan svip á íbúðina og uppfærir snyrtileikafaktorinn alveg hiklaust upp í 8 (á skalanum 1 til 10). Ekkert sóðalegt teppi sem lafir yfir rifnum sófa, hægt að ryksuga, skúra og sópa undir sófanum osfrv. Eini galli á gjöf Njarðar er þó að þar sem sófasettið er töluvert gerðarlegra og meira um sig er orðið lítið pláss til þess að snúa sér eða dansa í íbúðinni. Stefnan er því að fjarlægja fleiri húsgögn í staðin og verða okkur út um eilítið minna stofuborð, allra helst með hirslum (...Ikea here we come).
Ef einhver getur hugsað sér að endurlífga gamla rauð, sófann knáa og veita honum fyrstu, aðra og jafnvel þriðju hjálp með aðstoð klæðskera, saumakonu, móður sinnar eða jafnvel bara með nál og tvinna er velkomið að hafa samband við okkur sem allra fyrst. Eftir helgina verður sófinn jarðsunginn frá Sorpu í gufunesi. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en við bendum á Góða Hirðinn sem tekur við frjálsum framlögum.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli