mánudagur, mars 20, 2006

Lítið skref fyrir mjóa manninn en stórt fyrir mig

Bloggað á MSN Space November 18

Nú er aldeilis 3600° viðsnúningur framundan. Ég var bara ringlaður að hugsa um það. Ég mun snemma á næsta ári koma fram í sjónvarpsþætti á SkjáEinum. Þátturinn gengur út á hollt fæði og líferni eftir 10 grunnreglum Þorbjargar Hafsteinsdóttir hjkrfr. og næringarþerapista D.E.T. og Oscars Umahro Cadogan kokks. Í stuttu máli gengur þátturinn út á umbreytingu mataræðis.

Fylgst verður með mér yfir tæpa 3 mánuði frá byrjun desember með heimsóknum og viðtölum. Þættirnir verða svo sýndir á SkjáEinum í byrjun febrúar. 10 grunnreglurnar eru:

1.Þú skalt ekki neyta sykurs, hvorki sýnilegs, ósýnilegs eða gervisykurs!
2.Borðaðu bara heilkorn og ekki meira hvítt!
3.Ekki forðast fitu – borðaðu rétta fitu, holla og lífræna!
4.Mundu að borða meira gæðaprótein!
5.Borðaðu belgávexti (baunir, linsur og kjúklingabaunir) og hnetur á hverjum degi!
6.Þú skalt borða lífrænt grænmeti og ávexti oft á dag – minnst 600gr!
7.Drekktu 1½ L af vatni daglega og fersk pressaða grænmetis- og ávaxtasafa, grænt te og jurtate!
8.Borðaðu reglulega. Ekki sleppa morgunmat og borðaðu fleiri og minni máltíðir!
9.Borðaðu jafnt úr öllum fæðuflokkum (prótein, holla fitu og heilkorn eða belgávexti) og lífrænt!
10.Taktu inn fæðubótarefni – a.m.k. eina sterka fjölvítamín en helst meira!

Frekari upplýsingar um reglurnar má finna á www.madurlifandi.is eða www.10grunnreglur.com

Samfara þessu höfum ég, Hugi og Stefán Ara tekið okkur saman og hafið átak fram í miðjan desember. Veðmál hefur verið sett. Við vigtarmældum okkur 11.nóv og þann 20.des verður aftur tekin vigtarmæling. Sá sem hefur tapað hlutfallslega mestri þyngd sigrar. Hinir þurfa að greiða sigurvegaranum sem samsvarar tveimur bjórkippum eða 4 léttvínsflöskum. Það er ljóst að keppnin verður hörð. Við Hugi höfum ráðið einkaþjálfara í Hreyfingu í lið með okkur til að takast á við þessa ögrun. Ég er sigurviss og stefni á að rústa þessari keppni. Öllum er velkomið að heita á þátttakendur, enda öll hvatning til sigurs nauðsynleg.

Þeir sem vilja sjá mig meðan ég mæli mig í tonnum (0.1 tonn þann 11.nóv) þurfa að hitta mig sem fyrst. Eftir áramót verð ég horfinn að stórum hluta.

Engin ummæli: