föstudagur, október 26, 2007
miðvikudagur, október 24, 2007
ok þaa maa hann serda sva micit sem hann vill.

Eftirfarandi texti er tekkinn úr fornri íslenskri lækningabók sem líkegast var skrifuð um 1387 (ef ég skil dönsku rétt). Hún var endurprentuð af dönum árið 1907 þar sem ég las þennan texta. Það er ljóst að íslendingar þurftu ekkert Viagra á 14.öld:
Astimaca er mura aa donsku, hennar rætur ok frio er gott i læknnis-dom. Sidur madr hennar rætur vid litit hugnang ok vin ok dreckur þat *miced af muru þat er gott vid aunngva ok sott, vid sarum hosta sidla ok arla. Hver sem hana etur edur ber, þeim maa eigi eitur granda edur hauggormur skada. Etur madr miced af henne, þaa fyser mann til konu, ok þaa maa hann serda sva micit sem hann vill.
Bloggari
Óskar Þór Þráinsson
klukkan
14:15
0
ummæli
Flokkur Merkilegar uppgötvanir
mánudagur, október 22, 2007
One Apartment and Six Drummers

Mágur Guðrúnar, vinkona okkar Hörpu, hefur undanfarið verið að vinna mynd með litlum slagverksleikarahópi. Hópurinn hefur sett saman alveg stórskemmtilegt myndband þar sem þeir sýna ótrúlegt hugmyndaflug og skemmtilega takta. Myndbandið er rétt um 10 mínútur, en hópurinn er nú um þessar mundir að vinna að mynd í fullri lengd með sama konsepti. Ég er mjög fyrir því að sjá þessa mynd síðan (plz let me know Guðrún).
Bloggari
Óskar Þór Þráinsson
klukkan
10:21
1 ummæli
Flokkur Merkilegar uppgötvanir
fimmtudagur, október 18, 2007
Staðalfrávik úrtaksdreifingarinnar
Í dag upplifði ég atburð sem ég hef aldrei upplifað áður. Ótrúlegt atvik sem enn situr mér fast í minni mörgum klukkutímum síðar. Þetta var hreint út sagt ótrúlegt og mun eflaust seint gerast aftur, að minnsta kosti ekki á minni lífstíð.
Ég er búinn að sitja fastur við tölvuna síðan í morgun að læra og læra fyrir próf í Aðferðarfræði II (tölfræði) sem er á morgun.
Klukkan 15:46, þegar harpa var rétt farinn út úr dyrum að sækja Val Kára á leikskólann, rann það upp fyrir mér að í öllum lærdómnum hafði ég gleymt því að fara í tölvutíma (SPSS) í skólanum. Ég sver‘ða! Ég var svo upptekinn við að læra að ég gleymdi að mæta í skólann!!! Þetta verður sko ritað í sögubækurnar.
þriðjudagur, október 16, 2007
Íslenska

Íslenska er óviðjafnanlega fallegt mál. Eftirfarandi setning sem ég fann í uppsetningaskjali í ákveðnu forriti skildi mig eftir eins og undna tusku liggjandi á bakinu á brokkandi stóðhesti:
Hnekkja á sjálfgefnum stillingum
Bloggari
Óskar Þór Þráinsson
klukkan
16:59
1 ummæli
Flokkur Merkilegar uppgötvanir
fimmtudagur, október 11, 2007
Andlitsbók
Í gær lét ég undan og bjó til mína síðu á FACEBOOK.
Það er hægt að lýsa facebook með mörgum orðum, en orðið sem mér dettur helst í hug er rafræn félagsmiðstöð. Ég hef hingað til ekki séð mikið praktískt gili, en maður getur gjörsamlega týnt sér í að leita að gömlum vinum og fikti í endalausum litlum modulum. Ég er strax búinn að safna 10 vinum og búinn að gera fullt af könnunum, kominn í tvær grúppur og ýmislegt. Ég er ekki viss hvort facebook verði varanleg viðbót í quickbarnum í Firefox, en við skulum sjá hvað setur. Ef þið eruð á Facebook líka, endilega bæta mér í friends listann :Þ
Bloggari
Óskar Þór Þráinsson
klukkan
12:45
0
ummæli
Flokkur Merkilegar uppgötvanir
mánudagur, október 08, 2007
Sjálfsafgreiðslu útlán

Við Valur Kári fórum á aðalbókasafn í gær til að finna okkur nýjar bækur. Það verður að segjast að aðstaðan á barnabókasvæðinu er alveg frábær. Valur Kári undi sér lengi við leik og vildi síðan taka flest allar bækur með sér heim. Við duttum meira að segja inn á föndurstund hjá einhverri listakonu.
Það fréttnæma við þessa færslu er að í gær notaði ég í fyrsta sinn sjálfsagreiðslu vél bókasafnsins. Þetta var þokkalega ánægjulega upplifun og vandræða laus. Nú getur maður farið á netið og séð stöðu á bókunum sem maður er með í láni og jafnvel framlengt tímann. Þetta er hið besta mál. Ég efast ekki um að við Valur Kári förum næstu helgi niður á safn og náum okkur í aðrar sjö bækur.
p.s. mynd þessarar færslu tengist málinu ekki neitt, hún er bara svo krúttleg
mánudagur, október 01, 2007
Er verndardýrið mitt Sophista?
Samkvæmt rannsókn byggða á fræðum úr myndinni "The Golden Compass" á ég verndar"dæmon" sem kallast Sophista. Til þess að tryggja rétt val eruð þið, lesendur og vinir mínir beðnir um að meta sjálfsmat mitt og staðfesta valið. Sjá hér að neðan:
Bloggari
Óskar Þór Þráinsson
klukkan
23:55
1 ummæli
Flokkur Merkilegar uppgötvanir

