Hæfniprófaður

Í gær var ég hæfniprófaður fyrir starf í fyrsta skipti. Ég sá auglýsingu hjá morgunblaðinu þar sem þeir voru að leita eftir blaðamönnum í sumarstörf bæði fyrir morgunblaðið og mbl.is. Eftir nokkrar vangaveltur fékk Harpa mig til að prufa að sækja um. Morgunblaðið efndi síðan til einskonar inntökuprófs til að kanna hæfni umsækjenda. Ég fór því í gær í eitt af tölvuverum Versló og tók þriggja tíma próf til að reyna að sýna fram á að ég væri ágætur penni. Prófið var í þremur hlutum.
Fyrst átti að búa til 400-450 orða frétt úr 9 blaðsíðna dómsskjölum um vopnað rán í 10/11 verslun. Frekar ruglingslegur texti, og tók ekki nema um klukkustund og korter að leysa það.
Næsta verkefni var heldur snúnara og féllst í því að búa til 350 orða frétt upp úr sænskri, danskri og norskri frétt um fuglaflensu. Norðlandamálin hafa nú aldrei verið mín sterkasta hlið, en þetta hafðist á tæpum klukkutíma eftir nokkuð hark.
Þriðja verkefnið gekk út á að gera stutta 150orða frétt upp úr tveimur enskum fréttaskeytum þar sem fjallað var um hvað væri að gerast í Írak. Þar átti maður að velja úr hvað væri merkilegast og skrifa stuttan úrdrátt. þetta tók um 40mínútur og hafði ég því um 5 mínútur til yfirlestrar.
Fyrst munu íslenskufræðingar lesa textana yfir og þau próf sem skakklappast í gegnum þá síu fara rakleiðis til yfirlestrar hjá reyndum blaðamönnum.
Nú er spennandi að vita, getur það ómögulega gerst að einhver telji mig fremri hinum 40 til 50 umsækjendunum? Ég veeeit það ekki... en þetta var að minnsta kosti fínt í reynslubankann!

1 ummæli:
Já ég er sammála því að þetta próf hljómar spennandi. Var ekki gaman að leysa það? Krossum svo bara fingur! ;)
Skrifa ummæli