mánudagur, mars 20, 2006

Frammvirk heimboð

Bloggað á MSN Space November 16

Hver þekkir ekki það hvimleiða vandamál að eiga heima í frekar lítilli holu?

Hver kannast ekki við að eiga talsvert af vinum og ættingjum sem bjóða manni aldrei eða sjaldan í heimsókn?

Hver kannast ekki við að tíma ekki að bjóða vinum og kunningjum í mat því það þarfnast svo mikils undirbúnings og tilkosnaðar?

Nú er komin einföld lausn við þessu: Frammvirk heimboð!

Þig langar að hitta góðvini þína. Þú hringir í heimilismann, spjallar stuttlega og tilkynnir svo að þið verðið að fara að hittast. Svarið er auðvitað. "já, endilega!"(Hér endar hugmyndin yfirleitt). Það segir þú: "hvað segirðu um að við komum í kaffi með bakkelsi á næsta laugardag?

Hægt er að gera ýmsar útfærslur á þessu.
* Koma með take-away í kvöldmat
* koma með grillkjöt og kartöflusallat í kvöldmat
* Koma með bakkelsi í kaffi
* Koma með osta og kex síðla kvölds.
* Koma með bjór og snakk síðla kvölds um helgi
* Koma með rúnstykki, jógúr og djús í morgunmat
* Koma með súpu og brauð um miðdegið.

Svona mætti lengi telja. Það mælir heldur ekkert á móti því að mæta á staðinn með mat sem þarfnast matreiðslu upp að einhverju leiti.

Hugmyndafræðin er einföld: Ekki bíða eftir heimboði, bjóddu þér sjálfur og kondu með veitingar með þér!

"Ég og konan mín lærðum þetta af foreldrum mínum og höfum undanfarið gert þetta nokkru sinnum. Þetta er frábær leið til þess að hitta vini okkar oftar án þess að bíða eftir heimboði". - Óskar Þór (25), nemi

Hefðbundin heimboð eru þó alltaf æskileg í bland og yfirleitt vel þegin.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sem nýlegur "þolandi" framvirks heimboðs get ég fyllilega mælt með þessari aðferð - hentar kasóléttum konum amk mjög vel að fá gesti með nesti í heimsókn! Takk fyrir síðast. - November 17 9:14 AM