Hún er hriplek, blessunin

Nýtt myndband og nýr texti eurovision framlags íslendinga var frumflutt í Kastljósi síðastliðinn föstudag. Lagið heitir nú Congratulations. (Sjá hér http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4270135/3). Ég efast nú reyndar um að nokkur íslendingur hafi ekki séð myndbandið fyrr um daginn. MSN póstar, tölvupóstar og linkar á myndbandið breiddust út milli manna eins og offita í velferðarsamfélagi.
Skemmtileg þýðing á textanum en ekki eins gróft myndband og ég átti nú von á. Ég hlakka sérstaklega til að sjá þáttinn sem RÚV hefur verið með undanfarin ár þar sem norræn dómnefnd gagnrýnir öll eurovision lögin.
Ég var að komast að því að til er vefsíða: http://www.silvianight.com/ sem opnar fljótlega. Spennó!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli