föstudagur, ágúst 18, 2006

Special offer for you, my friend


Sindra kannan hefur vakið þó nokkra lukku meðal vina minna. Ég er margoft spurður hvað ég ætli nú að fá fyrir könnuna og hvað ég vilji helst. Svarið er alltaf það sama. Ég vil spennandi og skemmtilegan veglegan hlut frá einhverjum sem vantar góða hitakönnu. Ég hef þegar fengið nokkur tilboð og vonast til að fá nokkur fleiri áður en ég tek endanlega ákvörðun. Ég hef sett mér það tímamark að ganga frá næstu skiptum strax í byrjun næsta mánaðar. Ég er orðinn mjög spenntur fyrir næstu skiptum, en því miður get ég ekki skipt við alla sem vilja vera með í leiknum.

Á miðvikudag voru stórtíðindi í fjölskyldunni þegar Valur Kári átti 2 ára afmæli. Ótrúlegt hvað tíminn líður fljótt, ekki satt? Þetta er nú búin að vera talsverð vinna fyrir mig í meira en tvö ár til að ná þessum áfanga, en ég held að allir geti verið sammála því að mér hefur tekist vel til að móta hann, enda er hann yndislegur einstaklingur eins og mamma sín. Það er ekki verra því ég er voða skotinn í þeim báðum.

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Legðu frá þér verkfærin


Ég var rétt í þessu að fá fregnir að því að í hádeginum föstudaginn 11.Ágúst opnar Sindri glæsilega verslun fyrir fagmenn að Viðarhöfða 6, föstudaginn 11.ágúst. Af því tilefni bjóða þeir í hamborgara og gos milli 11.30 og 13.30 þennan dag í nýju versluninni. Í leiðinni langar þá að kynna okkur nýjustu verkfærin frá DeWalt og leyfa okkur að prófa þau.

Þau hlakka til að sjá okkur

Ætli þetta sé dulbúin hátíð til að fagna því að Sindra hitakanna sé í boði í skiptileiknum mínum?(Ekki spurning!)

miðvikudagur, ágúst 09, 2006

Tilboð óskast


Fyrir þá sem misstu af upphafinu: Fyrst bauð ég fram til skiptana litla Hestalyklakippu sem ég skipti yfir í þrjú fullgötuð kaffikort sem ég skipti síðan í hitakönnu úr stáli.

Undanfarna viku hef ég þó nokkuð fengið af fyrirspurnum varðandi skiptileikinn. Ég hef þó ekki enn fengið ómótstæðilegt tilboð. Ég get þakkað þeim bloggurum sem linkað hafa á mig þennan aukna áhuga. Ég hvet alla til að hjálpa mér að láta þetta fréttast.

Að gefnu tilefni vil ég enn og aftur taka það skýrt fram að þetta er ekkert grín. Mér er full alvara að ná settu markmiði.

Hitakannan frá Sindra er enn til boða. Reyndar kom það ekki fram í umfjöllun um könnuna þar stendur ekki eingöngu "Sindri" heldur einnig "Sterkur í verki" með smærra letri fyrir neðan. Einnig er mynd af manni með hamar á könnunni. Þessa könnu væri tilvalið að taka með sér: í síðbúna haustútilegu til að halda kakói heitu, snemma morguns í kennslustund til að halda sér vakandi nú eða að gefa í brúðkaupsafmælisgjöf...

Hægt er að hafa samband við mig með því að senda tölvupóst eða hringja í síma 659-8000

Kyle MacDonald, maðurinn á bak við rauðu bréfaklemmuna er hvergi af baki dottinn. Kyle er núþegar búinn að gera samning við bókaútgáfu sem mun gefa út sögu hans og fljótlega mun Kyle Skrifa undir samning við Dreamworks um kvikmyndaréttinn. Sjá nánar hér.