mánudagur, mars 20, 2006

Tíminn líður, trúðu mér


Bloggað á MSN Space January 19

Það er nú málið með tímann að hann er voðalega erfiður að eiga við. Hann líður áfram eins og á. Stundum rennur hann ljúfur gegnum falleg umhverfi en stundum ólgast hann áfram kaldur og harður og brýtur niður bakkana á leið sinni til sjávar. Fyrir mér eru fjórar staðreyndir sem skilgreina hugmynd mína um tíma:

1. Tíminn er óstöðvandi2. Tíminn er afstæður3. Fólk er til í ólíkum Tíma 4. Það er ekki til nógur Tími

1.Tíminn er óstöðvandi - Ég hef margoft reynt og óskað að ég geti stöðvað tímann, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir með göldrum, særingum og leit að vísindalegum eða yfirnáttúrulegum hlutum heldur hann bara áfram að líða. Það má því segja að ég hafi eytt tímanum í vitleysu við að leita.

2. Tíminn er afstæður - Samkvæmt fræðum Einstein þá gæti ég stöðvað tímann hjá mér, en engum öðrum. Ef ég myndi ferðast á allt að því ljóshraða myndi hægja verulega á tímanum hjá mér. Segjum að ég myndi ferðast á ljóshraða í hálft ár út í geim og hálft ár til baka, frá mér séð. Þegar ég kæmi til baka hefur fjöldi ára eða áratugir liðið hjá öllum öðrum. Semsagt, ég gæti ferðast til framtíðar. Eina vandamálið er að sjálfsögðu að finna farartæki sem kemst næstum því á ljóshraða.Nú fer ég að pæla, ef súperhraði hægir á tímanum hjá mér... ætti þá súperhægagangur ekki að hægja á tímanum hjá öðrum? Ég ætla að prófa á eftir að fara í göngutúr og labba örhæg hænuskref og sjá hvað gerist.

3. Fólk er til í ólíkum Tíma - Ég stend í þeirri trú að í öllum mönnum sé innbyggður tímamekanísmi sem stjórnar tímaskynjun einstaklinga. Ég til dæmis á við þann hvimleiða vanda að etja að ég er iðulega seinn þegar ég á að mæta einhverstaðar. Sumir myndi segja "já þú leggur ekki nógu snemma af stað". Staðreyndin er hinsvegar að það er sama þótt ég reyni það, ég kem samt alltaf seint. Ég er sannfærður um það að ástæðan sé að tíminn líði almennt hraðar hjá mér heldur en mörum öðrum. Það leiðir tvennt af sér:
A. Sá tími sem ég áætla til verks dugar ekki til. B. Ég er almennt lengur að hugsa en aðrir.
Mér finnst þetta mjög ósanngjarnt, því í raun hef ég færri tíma í sólarhringnum en margir aðrir, en ég verð að taka því, eða að byrja að taka amfetamín (sem hægir verulega á tíma og. gerir persónu kleyft að hugsa mun hraðar) en fórnin er þó líklega meiri en hagnaðurinn til langtíma litið. Þá er kannski einstaka þrúgusykurtafla betri... ef maður borðar sykur á annað borð.

4. Það er ekki til nógur Tími - Ultimate sannleikur lífsins tel ég vera að í raun er ekki til nógur tími. Það er alveg sama frá hvaða hlið málið er skoðað, líf einstaklings mun aldrei geta horft á allar bíómyndir heimsins, hlustað á alla tónlist heimsins, lesið allar bækur eða heimsótt alla ferðamanna staði í heimi. Ég mun aldrei gera allt sem mig langar og aldrei koma öllu í verk sem ég vil gera. Spurningin er náttúrulega að verja tímanum í það sem gefur mér sem mesta lífsfyllingu og langtíma ánægju.

Þetta eru staðreyndirnar sem ég lifi við amk. þangað til ég finn út úr því hvernig á að stöðva tímann

Engin ummæli: