föstudagur, mars 24, 2006

Fjölskyldufréttir


Bloggað á MSN Space March 20

Eins og komið hefur fram hefur Valur Kári verið reglulega veikur með eyrnabólgur, kvef, hósta og lungnabólgu síðan í haust. Að lokum var ákveðið að taka nefkirtlana úr honum. Helgina fyrir aðgerðina fékk hann kvef og mikinn hósta og varð að fresta aðgerðinni. Hann er búinn að vera mikið heima síðustu þrjár vikurnar og loksins fór hann í aðgerð á mánudag fyrir viku síðan. Hannes Hjartarson, frændi okkar, sá um aðgerðina og skellti rörum í bæði eyrun um leið. Valur Kári var skiljanlega slappur og pirraður næstu daga en virðist nú vera búinn að ná sér, enda farinn að fara á leikskólann aftur eftir langt hlé. Vonandi verður þetta síðasta veikindafríið á þessu ári, 7, 9, 13...

Gleði tíðindi eru einnig úr stórfjölskyldunni, því ekki er nóg með það að eldri systir mín, Hrönn, eigi bara um 8 vikur eftir af meðgöngu heldur á elsta systir mín, Sif, nú von á sínu öðru barni. Það fjölgar semsagt en í fjölskyldunni hjá mér. Þvílíkt yndislegt barnaflóð.

Við Hapa stefnum á að kíkja í heimsókn út til Þýskalands í vor til að heilsa upp á nýju frænku mína.

Engin ummæli: