mánudagur, júlí 30, 2007

Ósjálfstæð býfluga


Um daginn var ég staddur í sjoppu að ná mér í eitthvað snarl. Þá kem ég auga á nýja afurð frá Vífilfelli: "Berg toppur". Eins og allir vita þá er ég sucker fyrir nýjungum þannig að ég spurði hvað þetta væri. Afgreiðslumaðurinn svarar af miklum áhuga að þetta sé nýjasti vatns-hittarinn. Bragbætt vatn án kolsýru, til með skógarberjarbragði og sítrónu. "Oooooo" hugsaði ég. "Skógarberja... mmm" og skellti mér á eitt stykki. Það var ekki fyrr en ég opnaði flöskuna í vinnunni og tók fyrsta sopann af sætu skógarberjavatninu að ég gerði mér grein fyrir því hvað ég hafði raunverulega gert. Ég hafði virkilega borgað fullt "gosflöskuverð" fyrir Gvendarbrunnavatn með sykri og bragðefni.

Því meira sem ég hugsa um þetta því verr líður mér. Sykrað vatn. SYKRAÐ VATN. ÞAÐ ER EKKI EINUSINNI KOLSÝRA Í ÞESSU! AF HVERJU SYKRA VATNIÐ?
Grínlaust, er ekki allt í lagi með þjóðina? Svona er innihaldslýsingin á flöskunni:

Bragðbætt vatn án kolsýru. Innihald: Vatn, ávaxtasykur, sítrónusýra, rotvarnarefni (e202, E211), bragðefni.

Við erum að tala um vöru þar sem hráefni númer 2 á eftir vatni er umbreyttur sykur. Það er minna af bragðefni heldur en rotvarnarefnum. KRÆST. Ég kaupi þetta aldrei aftur, svo mikið er víst... og svo var bragðið ekki einusinni gott. Bragðaðaðist eins og skógarberjaklósettsteinn (get ég ímyndað mér).

Ekkill


Næstu rúmar tvær vikurnar er ég ekkill. Harpa fór á föstudaginn ásamt 440 íslenskum skátum á alheimsmót Skáta (World Jamboree). Mótið er haldið að þessu sinni á Bretlandseyjum í mecca skátahreyfingarinnar, við Gilwell Park. Þar fór Baden Powell með fyrstu strákana í útilegu fyrir margt löngu síðan. Mótið er ógnarstórt, 42þúsund manna mót með skátum frá 159 þjóðlöndum.

Harpa er í fararstjórn Viðeyjarsveitar sem samanstendur af 34 skátum á aldrinum 14-18 ára úr skátafélaginu Stróki í Hveragerði og úr skátafélaginu Ægisbúum úr vesturbæ Reykjavíkur.

Allar stærðir á svona móti eru svo súrealíksar. Þvílík skipulagning, þvílíkur fjöldi sjálfboðaliða.

Hugsum okkur einfalt reikningsdæmi. 42þúsund manns í allskonar dagskráliðum sem spanna allt frá keramik mótun upp í klettaklifur. Hvað ætli margir slasi sig á dag? Það er ekki að spyrja að því að á svæðinu eru rekin ótal sjúkratjöld og hæfilega stór spítali til að sinna mótinu.

Annað dæmi. Í morgunmat getur sveitin hennar Hörpu valið um hefðbundið bakkelsi og morgunkorn eða egg og beikon. Ef þau velja English Brekfast fá þau 5kg af beikoni og 36 egg. Hugsum okkur að þriðjungur eða jafnvel aðeins fjórðungur mótsins velji sér sama morgunmat. Hvað eru við þá að tala um mörg kíló af beikoni á dag? Hugsaðu síðan með þér að allir fá hádegismat og kvöldmat. Reynið nú að ímynda ykkur matarúthlutunina og magn matvara sem fara í gegnum svæðið á 12 dögum. Sannarlega „mindbogling“ stærðir.

Frekari upplýsingar um mótið fyrir forvitna má finna hér:

Nexos Viðey
Heimasíða ferðarinnar
Heimasíða mótsins

sunnudagur, júlí 08, 2007

Ever so much...


Það er aldeilis búið að ganga mikið á undanfarið. Við fórum loksins til Þýskalands aðra vikuna í júní og höfðum það óendanlega gott, gerðum ótrulega margt skemmtilegt og trúlofuðum okkur. Fórum svo vikuna á eftir á Flúðir þar sem ég var í útivinnu og svo slöppuðum við auðvitað af í pottinum. Svo átti ég auðvitað afmæli í lok júní. Nú er vinnan tekin við, og ýmislegt fleira.

Ég á von á því að ég hripi niður aðeins nánari ferðasögu við tækifæri, en það er nú bara þannig á sumrin þegar maður er er að vinna eða að leika sér, að bloggið lendir neðarlega í verkefnaröðinni. Verð að sýna ykkur myndir samt, við tækifæri.