laugardagur, mars 18, 2006

Maður getur ekki verið eftirlegu kind



Bloggað á MSN space May 02 2005

Það er víst kominn tími til að prufa þessa nútímalegu blogg áráttu sem margir eru haldnir. Ég er sjálfur manna óduglegastur í að lesa annarramanna blogg en get samt skilið hve hagnýtt blogg getur verið. Sumir fá þar útrás fyrir þverpóletískum skoðunum, aðrir segja frá heiftarlegum djamm ferðum og botnlausu djammi, en margir nota blogg sem upplýsingaveitu um hvað er að gerast í lífi þeirra. Reyndar ganga sumir svo langt að þeir segja frá hverju ofurminnsta smáatriði eins og hvað þeir borðuðu í hádegismat eða hvenær farið var á klósettið. Það er ekki ætlun mín að standa í svoleiðis skrifum hér... en annars hef ég enga hugmynd um hvað ég ætla mér að gera. Jú, ætli markmiðið með þessum space'i sé ekki að fanga pennann í mér sem hefur legið of lengi í dvala. Vonandi verður þetta svæði gróðrarstía fyrir skemmtilega og minn persónulegi sköpunarbaukur. Í vesta falli verður þetta óáhugavert blogg sem enginn les nema ég.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er gaman að lesa blogg :) Samt ekki endilega klósettferðablogg...

Nafnlaus sagði...

hmm, áhugaverðar pælingar - May 03 10:17 AM