laugardagur, mars 18, 2006

Stelpurnar


Bloggað á MSN space October 12

"Gott með'ðig" er uppohalds settningin mín þessa dagana. Einnig eru setningar eins og "Ert'ekkí djókinu?" og "Oboj obojobojo boj... aðeins of mikið" vinsælar. Glöggir áhorfendur stöðvar 2 taka eftir því að þarna er ég að vitna í tvær persónur sem Ilmur Kristjánsdóttir leikur í Stelpunum, sketsja gamanþætti á laugardögum á stöð 2.
stelpurnar er hinn allraskemmtilegasti þáttur og ég mæli eindregið með áhorfi. Ég á það til að missa mig af hlátri, alveg ólíkt skemmtilegri þáttur heldur en til dæmis spaugstofan þó það megi nú brosa að þeim þætti á stökum stað. Það sem er líka merkilegt við þennan þátt er að það er ekki síður óborganlegt að horfa á þá aftur.
Það sem gerir þá sérstaklega fyndna er ef til vill eftirfylgni bandara þegar sömu ótrúlega skrautlegu persónur birtast aftur slag í slag með nýja útgáfu af sama brandaranum. Sumar persónur voru lítið fyndnar í fyrsta þætti en maður fattaði síðan með miklum hlátri í þeim næsta! Ég get ekki beðið eftir næsta þætti og séð hvað þær munu bjóða uppá.

Engin ummæli: