Engin venjuleg bolla

Bloggað á MSN Space February 27
Í dag var bolludagur. Um helgina íhugaði ég örlitla stund að sleppa bollum sökum hollustuátaks, en sú geðveiki rann þó tiltökulega fljótt af mér, eða á um 10 sekúndum. Síðustu dagar tveir hafa því farið í það að finna út úr því hvernig ég geti gert bolludagsbollur á sem hollastan hátt. Úr varð hollráð vikunnar:
Minna óhollar vatnsdeigs Bolludagsbollur að hætti Óskars:
Innihald:
4 dl vatn
160 g smjör
250 g grófmalað spelt
1/4 tsk vínsteins lyftiduft
5 egg ef mótað með skeið,6 ef notuð er rjómasprauta.
Valfrjálst:
1tsk KanilHnífsbroddur vanilluextrakt
2tsk Xylitol
Brætt suðusúkkulaði eða 70% hreint súkkulaði
Fylling:
Rjómi
Sykurlausar sultur eða ávaxtamauk
Lýsing:
Setið vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Blandið saman speltinu og lyftiduftinu og bætið því síðan smám saman í pottinn og hrærið hraustlega í með sleif eða hrærivél á hægum hraða þar til myndast hefur kögglalaust, slétt og samfellt deig sem sleppir pottinum. Takið pottinn af hellunni og kælið aðeins. Hrærið síðan eggjunum saman við einu í einu en hrærið vel á milli. Hægt er að bæta við kanil, vanilluextrakt og xylitol til að gera bollurnar bragðbetri og sætari. Það er ekki nauðsynlegt en gerir þær enn ljúffengari. Setjið með skeið eða rjómasprautu á bökunarplötu, 1 msk í hverja bollu. Bakið í ofni í 25-35 mín.við 210°c(200°c í blástursofni.) Varist að opna ofninn fyrr en vel er liðið á baksturstímann því annars er hætta á að bollurnar falli.
Bræðið suðusúkkulaði eða 70% hreint lífrænt súkkulaði og látið leka nokkrar rendur yfir bollurnar.
Í bollurnar er best að nota sykurlausar sultur frá ST.Dalfour sem fást í öllum verslunum eða sætuefnalaus ávaxta mauk (bláberja eða jarðaberja) frá Sollu sem fást í Hagkaupum. Rjómi er auðvitað nánast ómissandi.
-------
Þessi uppskrift er ef til vill nokkuð síbúin fyrir flesta, nema þá nokkrar eftirlegukindur sem gleymdu bakstri í dag, en það væri nú ekki vitlaust að punkta þessa uppskrift hjá sér fyrir næta ár! Fólk er þó velkomið í heimsókn á morgun, því nóg er eftir að speltbollunum og nokkuð til af rjóma. Því má viðbæta að bollurnar sjálfar má nota með hvaða áleggi sem er hvort sem það er túnfiskur, sallöt, kotasæla, ber eða hvað annað sem hugurinn girnist. Glöggir lesendur átta sig á því að bollurnar sjálfar eru nokkuð hollar en meðlætið ekki. Það er hinsvegar bara einn bolludagur á ári, því ekki að lágmarka óhollustuna eins og hægt er en gera sér samt glaðan dag? Spurningin á endanum er náttúrulega. HVAÐ MARGAR BOLLUR ÆTLARÐU AÐ BORÐA?

Engin ummæli:
Skrifa ummæli