laugardagur, mars 18, 2006

Tíminn og rúmið

Bloggað á MSN space June 06

Það er einn ákveðinn hlutur sem aðskilur mig og aðra bloggara. Það er tíminn. Ég hef núna á síðustu vikum lent í erfiðri ákvörðurnartöku. Á ég að skrifa eitthvað inn á Space'ið mitt eða gera einhvern af hinum hlutunum sem ég á eftir að gera? Yfirleitt hef ég valið aðra hluti, amk þangað til núna. Ég held að helst ástæða fyrir leiðilegum bloggum sé að margir sem halda úti blogg síðu hafa allt of mikinn tíma. Vandamálið hjá mér er þá eflaust að ég hafi of lítinn... eða þá að það renni ekki bloggarablóð um æðar mínar? Held ég ætti bara að fara í rúmið að slappa af með góða bók. Spurning að enda samt með "blogg klassík: Nú ætla ég að vera duglegri að skrifa.

Engin ummæli: