mánudagur, mars 20, 2006

Pest


Bloggað á MSN space October 27

Síðasta helgi var aldeilis mögnuð. Valur Kári reið á vaðið á föstudag með niðurgang og brenndan rass. Ég fylgdi á eftir síðari hluta laugadags með miklum magakveisum hita og nánást óráði, enda varð ég að skríða upp í rúm um leið og Valur Kári fór að sofa, um 20:30. Á Sunnduag var síðan sláturgerð í Brautarlandi, mikið fjör og gaman. Undir kvöld þegar líða tók að heimferð var Arna Ösp komin með hita.Daginn eftir, á mánudag voru mamma og Harpa komnar með pípandi upp- og niðurgang sem entist daginn. Á þriðjudag fékk Sif síðan svipuð einkenni og ég.Þannig eru allir nema pabbi búnir að fá sinn skamt, en Bjarni var búinn með upp og niður ein eða tveim vikum áður.
Við Harpa erum þó glöð því sá sögulegi árángur náðist að hafa VK óveikan í heila viku síðan í sumar, áður en að niðurgangnum kom.

Nú er veikindatímabilið búið (*bank bank* 7 9 13)

Engin ummæli: