þriðjudagur, maí 09, 2006

Þung prófatörn

Það voru nokkur takmörk sem ég setti mér fyrir prófatörnina. Hér eru nokkur dæmi:

1. Fara í Hreyfingu á hverjum einasta degi

2. Borða hollan og góðan mat eftir 10 Grunnreglum

3. Læra vel undir prófin á hverjum degi

4. Ná öllum prófum

5. Hætta að horfa á sjónvarpið

6. Ekki falla í þá grifju að fara að spekúlera alvarlega í einhverjum hlutum sem geta beðið framyfir próf

Það er skemmst frá því að segja að útlit er fyrir það að ég nái ekki einu einasta markmiði.

Valur Kári reið á vaðið í fyrstu viku prófa og veiktist með upp og niðurgang í heila viku. Enginn leikskóli og mikil þörf á umhyggju. Það lagaðist í viku og hálfa en þá fékk hann háan hita. Valur Kari er orðinn hundleiður á þessu flandri milli leikskóla og ömmu og afa og við Harpa grunum hann um að fá (ómeðvitað) hita til að fá að vera heima hjá okkur.

Hitt (að mestu leiti ótengt) er að ég er dottinn ofaní versta óhollustupitt ársins. Kók í tugum lítra, sælgæti, pizzur, pulsur og þaðan af verra... eða betra... allt eftir því hvernig maður lítur á málin auðvitað. Þegar prófin eru búin hætti ég þessum viðbjóð og fer að léttast aftur.

Og hvað er þetta með gott veður á prófatímum.... dont get me started!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En hvað er annars málið með þetta óléttupróf? Ertu orðinn óléttur eftir allar pizzurnar?

Óskar Þór Þráinsson sagði...

Þetta er sko orðaleikur, þú veist, þungunarpróf... ég er að þyngjast í prófunum af öllum þessum vibba mat og sælgæti.

Nafnlaus sagði...

Að setja raunhæf markmið hefur löngum þótt góður siður. Þú veist, markmið eins og "í dag ætla ég ekki að drepa konuna mína og leysa líkið upp í krómsýru".

Óskar Þór Þráinsson sagði...

Klárum bæði á mánudag. Frekar ömurlegt að vera yfir eina helgina í viðbót í prófalestri, ekki síst þegar auglýst eru próflokadjömm á laugardag!

Óskar Þór Þráinsson sagði...

Jú, geri ráð fyrir að ég kveðji Val Kára seinnipartinn á morgun og sjái hann lítið fram á mánudag. Hann verður í pössun hjá ömmunum og öfunum fram á prófdag með stuttri næturviðkomu heima.