laugardagur, maí 13, 2006

Píkupoppari


Í kjölfar síðustu blogg færslu fór ég að hugsa betur út í þessa einstöku lagadýrkun.Í barnæsku hafði ég töluvert litla skoðun á tónlist yfir höfuð og fílaði fátt. Það var ekki fyrr en systir mín,Hrönn, kynnti mér fyrir einum safndiska sinna, Best of Dance 92 , að hjólin fóru að snúast. Þessi diskur varð mitt uppohald og hef ég verið veikur fyrir hiphoppi síðan. Minnisstæðast af þessum disk er lagið Sesames Treet, sem var remix af stefi Sesame Street barnaþáttanna (sem ég þekkti reyndar ekki á þeim tíma). Það lag spilaði ég aftur og aftur og aftur.

Síðan þá hafa ófá lög tekið mig heljargreipum. Ekki man ég öll í dag en get nefnt þau nokkur sem hafa staðið uppúr:Sexbomb (Tom Jones), Wadde Hadde Dudde Da (Stefan Raab), LadyShave (GusGus), Bömpaðu Baby (Fjallkonan), I like the way you move (BodyRockers), Halló Halló Halló (Stuðmenn, Triple Eye remix), Everybody dance now (C&C Music Factory), All out of luck (Selma), Oops I did it again og Toxic (Britney Spears), A little less conversation (Elvis Presley vs JXL), Saint (titillag samnefndar myndar), Clubbed to Death (Rob D), Children (Robert Miles)...svo nokkur lög séu nefnd.

Af þessum lista er augljóst að ég er með spes smekk sem einkennist af góðum takti, heilsteyptu stefi og svolitlu píkupoppi... held það komi nú í rauninni ekkert á óvart, ef út í það er farið.

Engin ummæli: