Týndur í eigin eftirvæntingu
Í gær horfið ég á tvöfaldan lokaþátt seríu tvö af LOST. Þessir þættir eru gjörsamlega óþolandi yndislegir. Loksins fékk ég svör við nokkrum áleitnum spurningum sem hafa brunnið á manni síðan í upphafi annarrar eða jafnvel fyrstu seríu.... EN um leið og einni er svarað koma tvær nýjar spurningar í viðbót. Nú þarf ég að bíða fram á haust eftir framhaldi.
Ég hef heyrt að þeir ætli að stefna á 7 seríur, sem þýðir að það er langt þangað til ég fæ að vita hvað er raunverulega að gerast, hvað er á seyði og hvar þau raunverulega eru. Líklegast eru 4 ár þangað til að svörin liggja fyrir... EF þeir svara þá öllu (and they better!)
Þróun lost þáttana og allra spurninga sem brenna á vörum manns má lýsa stuttlega í einni kjarnyrtri setningu. "The plot thickens!"


Engin ummæli:
Skrifa ummæli